Fyrir nemendur
Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, býður upp á BA-nám á fjölda fræðasviða. Til BA-prófs er krafist minnst 180 eininga. BA-nám tekur þrjú ár miðað við full námsafköst.
Auk grunnnáms er hægt að stunda framhaldsnám (M.A. og / eða doktorsnám) í annarsmálsfræðum, dönsku, ensku, frönskum fræðum, spænsku og þýsku. Í samstarfi við Íslensku- og menningardeild er hægt að leggja stund á nám í þýðingafræði, nytjaþýðingum og túlkun. Haustið 2011 verður boðið upp á nýja þverfaglega námsleið í meistaranámi: Bókmenntir, menning og miðlun. Einnig verður hægt að hefja M.A.- nám í Norður-Ameríkufræðum (sjá námsbraut í ensku).
Til BA-prófs eru fræðigreinar ýmist kenndar til 180, 120 eða 60 eininga og geta nemendur valið hvort þeir taka eina aðalgrein (180 e) eða aðalgrein (120 e) og aukagrein (60 e). Nemendur geta tekið aukagrein í annarri deild Háskólans og enn fremur er hægt að taka hluta af náminu við erlenda háskóla. Innan deildar er nemendum einnig heimilt að ljúka 120 eininga námi í tveimur aðalgreinum (samtals 240 e) og skrifa BA-ritgerð í báðum greinum. Teljast þeir þá hafa lokið BA-prófi í tveimur aðalgreinum.
Námsmat felst í skriflegum og/eða munnlegum prófum, æfingavinnu, verkefnum eða ritgerðum. Minnst 10 einingar skulu felast í samningu lokaritgerðar til BA-prófs.
Í öllum fögum innan deildarinnar þurfa nemendur að skrifa ritgerðir og er því grundvallaratriði að þeir kynni sér þær reglur sem gilda um ritgerðir, heimildavinnu, höfundarétt o.s.frv. Þá gilda sérstakar reglur um samningu og frágang BA-ritgerða og sérstakt sniðmát er aðgengilegt hér á vefnum.
Fyrirspurnir
Hugvísindasvið sér um stoðþjónustu til handa deildinni. Skrifstofa Hugvísindasviðs er til húsa í Aðalbyggingu, 3. hæð og er opin frá 10 - 12 og 13 - 15.
Sími: 525 4401, fax: 525 4410.
Verkefnastjóri: María Gestsdóttir, sími 525 4401, mariage@hi.is
Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, sími: 525 4262, gb@hi.is
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.



