Rannsóknir og útgáfa



RitiðHugvísindastofnun er rannsóknastofnun sem starfrækt er við Háskóla Íslands og heyrir undir Hugvísindasvið. Hún er miðstöð rannsókna á sviðinu og aðrar rannsóknastofnanir þess starfa innan vébanda hennar, þ.m.t. eftirtaldar sjö meginstofnanir: Bókmennta- og listfræðastofnun, Guðfræðistofnun, Heimspekistofnun,  Málvísindastofnun, Sagnfræðistofnun, Siðfræðistofnun og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.  Þessar stofnanir stunda verulega útgáfustarfssemi, yfirleitt í samvinnu við Háskólaútgáfuna.

Fastastarfsemi Hugvísindastofnunar er hluti af stjórnsýslu- og skrifstofuþjónustu sviðsins. Stofnunin veitir kennurum sviðsins ýmsa þjónustu í útgáfumálum og fjárhagsumsýslu, sér um samskipti við forlög og aðstoðar við að finna fagfólk eins og hönnuði, umbrotsfólk og prófarkalesara, sé þess óskað.

Hugvísindastofnun gefur út tímaritið Ritið, sem hóf göngu sína 2001. Stefnan með útgáfu Ritsins er að gefa fólki kost á að lesa öflugt og vandað fræðirit sem er í fararbroddi menningar- og þjóðfélagsumræðu á Íslandi. Tímaritið er ritrýnt. Það kemur út þrisvar á ári og birtir efni af víðum vettvangi hugvísinda.

Bókmennta- og listfræðistofnun gefur út sjö ritraðir: Afmælisrit, Fræðirit, Höfundar, Íslensk rit, Íslensk trúarrit, Studia Islandica og Þýðingar. Háskólaútgáfan annast dreifingu.

Sagnfræðistofnun gefur út þrjár ritraðir: Sagnfræðirannsóknir - Studia historica, Ritsafn Sagnfræðistofnunar og Heimildasafn Sagnfræðistofnunar.

Málvísindastofnun gefur út fræðirit, kennslubækur og handbækur um samtímalega og sögulega málfræði.

Heimspekistofnun gefur út greinasöfn, bækur og kennsluefni um heimspeki og hefur lagt ríka áherslu á þýðingu sígildra heimspekirita á íslensku.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum gefur út ritraðir með tvímálabókum, ráðstefnuritum og völdum fræðiritum á fræðasviðinu.

Guðfræðistofnun hefur gefið út Ritröð Guðfræðistofnunar, Studia Theologica Islandica, frá árinu 1988 og hafa að jafnaði komið út eitt til tvö hefti á ári. Einnig hafa verið gefnar út Rannsóknarritgerðir og skýrslur Guðfræðistofnunar.

Siðfræðistofnun hefur verið í mikilli alþjóðlegri samvinnu og einnig gefið út einstök rit á íslensku.

 

Síða uppfærð / breytt 12. janúar 2011

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

 

Hafðu samband

  • Skrifstofa Hugvísindasviðs
    Aðalbygging, 3. hæð
    Opið: 10-12 og 13-15
    sími: 525 4400, fax: 525 4410
    hug@hi.is

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs