Um deildina



Tannlæknadeild er ein 6 deilda Heilbrigdisvisindasvids Háskóla Íslands. Hinar deildirnar eru Hjúkrunarfræðideild, Lyfjafræðideild, Læknadeild, Matvæla- og næringarfræðideild og Sálfræðideild.

Tannlæknadeild býður upp á öfluga kennslu í tannlæknisfræði og haustið 2009 hófst kennsla til BS prófs í tannsmíði við deildina. Íslendingar geta státað af því að eiga einhverja best menntuðu og færustu tannlæknastétt í heimi. Íslenskir tannlæknanemar eru mjög eftirsóttir á erlendri grundu og hafa staðið sig vel í framhaldsnámi erlendis.  Á tímum tækni og upplýsinga á sviði tannlækninga er mikilvægt að viðhalda þekkingu og fylgja tíðarandanum.  Tannlæknadeild býður upp á  viðhalds- og símenntunarnámskeið fyrir útskrifaða kandídata og hafa þau verið vel sótt.

Tannlæknastofa deildarinnar (klíníkin) veitir almenningi og tannlæknum bæði almenna og sérhæfða þjónustu. Tannlæknastofan er kennslustofnun líkt og spítalarnir eru fyrir verklegt nám annarra heilbrigðisstétta. Munurinn er sá að Háskóli Íslands greiðir kostnað við allt nám tannlæknanema en kostnaður við verklegt nám annarra heilbrigðisstétta er hluti af kostnaði við rekstur sjúkrahúsa.Tekið er lágt gjald fyrir alla þjónustu sem veitt er sjúklingum sem koma á tannlæknastofuna. 

Í samstarfi við tannlæknadeild fer einnig fram kennsla í tanntækni, einni af stoðgreinum tannlækninga, og innan fárra ára stefnir deildin að því að bjóða upp á diplómanám í tannfræði.

Klínísk kennsla deildarinnar stenst alþjóðlegan samanburð samkvæmt jafningjamati, enda hafa kennarar sótt framhaldsmenntun sína til margra af bestu tannlæknaskólum í Bandaríkjunum og Evrópu.

Tannlæknadeild veitir heilbrigðisyfirvöldum og almenningi ráðgjöf og kemur að endurmenntun tannlækna og leggur sitt af mörkum til alþjóðlegrar hjálparstarfsemi.

deila á facebook

Hafðu samband

  • Skrifstofa Tannlæknadeildar
    Læknagarði, 2. hæð
    Sími 525 4871
    givars@hi.is

    Opið virka daga kl. 8:00-16:00

  • Tannlæknaþjónusta fyrir almenning
    Veitt á kennslutíma (sept.-nóv. og jan.-apríl)
    Tímapantanir og upplýsingar í síma
    525 4850
    klinik@hi.is

    Nánari upplýsingar