Tannlæknisfræði
Tannlæknadeild er lítil og persónuleg og býður nemendum upp á faglegt og krefjandi nám í tannlæknisfræðum, þar sem lausnarleitarnám er haft að leiðarljósi og nemendur hvattir til dáða.
Nám í tannlæknisfræði hefur það að meginmarkmiði að mennta nemendur í tann- og munnvísindum og stuðla þannig að bættri munn- og tannheilsu þjóðarinnar. Námið tekur 6 ár og lýkur með kandidatsprófi í tannlækningum (Cand.odont-próf). Á 1. og 2. ári stunda nemar nám í undirstöðugreinum tannlæknisfræðinnar. Á 3. ári er lögð áhersla á verklegar æfingar og á 4. - 6. ári er megináherslan á vinnu með sjúklinga sem fram fer á aðgerðastofu deildarinnar. Nemendur verða að taka þátt í öllum verklegum æfingum og standa skil á verkefnum.
Tannlæknisfræði er einungis hægt að stunda sem aðalgrein. Námið er alls 360 einingar. Í desember að loknu 1. misseri 1. árs er haldið samkeppnispróf. Sjá nánar í upplýsingum um inntökuskilyrði.
Nemendur geta tekið rannsóknarverkefni sem valgrein undir stjórn umsjónarkennara. Einingar eru breytilegar.
Upplýsingar um tannlæknisfræði í kennsluskrá
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Tannlæknadeildar
Læknagarði, 2. hæð
Sími 525 4871
givars@hi.isOpið virka daga kl. 8:00-16:00
- Tannlæknaþjónusta fyrir almenning
Veitt á kennslutíma (sept.-nóv. og jan.-apríl)
Tímapantanir og upplýsingar í síma
525 4850
klinik@hi.is Nánari upplýsingar

