Samstarf
Deildin á í margskonar samstarfi við ýmsa aðila, bæði innanlands og erlendis. Tengsl við atvinnulífið eru góð og vinna fjölmörg fyrirtæki og stofnanir með deildinni. Samstarf Háskólans annars vegar og fyrirtækja og opinberra aðila hins vegar skilar starfsmönnum og nemendum skólans miklu. Öflug samvinna er atvinnulífinu ekki síður mikilvæg en skólanum þar sem Háskólinn hefur verið driffjöður íslensks atvinnulífs og gegnir enn lykilhlutverki í því að gera Ísland samkeppnishæft á alþjóðavettvangi.
Öflugt alþjóðlegt samstarf
Háskóli Íslands starfar í alþjóðlegu umhverfi og á deildin samstarf við fjölmarga erlenda háskóla og rannsóknastofnanir um rannsóknir, nemendaskipti, starfsmannaskipti og fleira.
Kennarar sem og nemendur deildarinnar eiga í öflugu alþjóðlegu samstarfi. Kennarar skólans stunda rannsóknir við erlenda skóla, eru í alþjóðlegum rannsóknarteymum og nýta gjarnan rannsóknaleyfi við erlenda skóla. Nemendur eiga kost á því að stunda hluta af námi sínu við erlenda skóla í samráði við deild. Jafnframt koma erlendir kennarar til starfa við skólann yfir styttri og lengri tímabil.
Deildin leggur mikla áherslu á alþjóðleg samskipi í öllu starfi sínu og vinnur stöðugt að því að styrkja þau og efla.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Sálfræðideildar
Odda, 1. hæð
Sími 525 4240
saldeild@hi.is Opið virka daga kl. 10:00-12:00 og
13:00-15:30


