Um deildina



Deildin leitast við að vera í fremstu röð með vönduðum rannsóknum og kennslu sem stenst samanburð á alþjóðlegum vettvangi. Hún er nú þegar ein öflugasta eining Háskólans í rannsóknavirkni á hvert stöðugildi kennara.  Fyrst um sinn verður deildin með stoðþjónustu á Rannsóknastofu í næringarfræði en fljótlega verður komin öflug stoðþjónusta og skrifstofuaðstaða við deildina.

Mikilvægi
Matvæla- og næringarfræði mæta þörf samfélagsins fyrir sérhæfða menntun til að sinna mikilvægum verkefnum. Þar eru fremst öryggi og hollusta matvæla með hag, velferð og kröfur neytenda í huga. Fræðigreinarnar eru alþjóðlegar. Þær fjalla um mat og næringu bæði þar sem of lítið er af mat og fólk líður skort og þar sem röng eða of mikil neysla matvæla er til skaða. Greinarnar taka tillit til hefða og umhverfismála og vinna að raunhæfum lausnum verkefna.

Öflun, framleiðsla, vinnsla og sala á matvælum verður um langa framtíð ein af megin stoðum efnahagslífsins. Mikilvægi grunnrannsókna á matvælum fer vaxandi meðal annars vegna tilkomu nýrra afurða á markaðinn, sem byggja á hröðum framförum í líftækni. Verkefni eru m.a. um lausnir í líftækni, framleiðslu, vinnslu, öryggi, nýtingu, umbúðir og þróun matvæla með hagsmuni neytenda að leiðarljósi.
Næringarfræðin tekur mið af lýðheilsu- og hollustusjónarmiðum og fjallar m.a. um næringarþörf heilbrigðra og sjúkra á ýmsum æviskeiðum, um hlutverk og jafnvægi næringarefna í mannslíkamanum, um gæði matvæla út frá hollustu annars vegar og hættu hins vegar og um ráðleggingar um mataræði.
 
Atvinnumöguleikar
Framtíðarhorfur matvælafræðinga og næringarfræðinga á vinnumarkaði eru mjög góðar.
Matvælafræðingar sinna mikilvægum störfum á flestum sviðum er tengjast matvælaframleiðslu, manneldi, rannsóknum, stjórnun, ráðgjöf og markaðsmálum.  Margir starfa innan matvælaiðnaðarins við stjórnun á framleiðslu, gæðum, vöruþróun og við framkvæmdastjórnun fyrirtækja. Aðrir starfa að rannsóknum á ýmsum stofnunum, í líftækniiðnaði og við kennslu. Matvælafræðingar starfa einnig að markaðsmálum og sem ráðgjafar hjá fjármálastofnunum.

Næringarfræðingar taka þátt í stjórnun, stefnumörkun og ákvörðun um næringarfræðileg málefni og ráðleggingar um mataræði. Þeir starfa meðal annars hjá einkafyrirtækjum, rannsóknastofnunum, eftirlits- og stjórnsýslustofnunum, háskólum og öðrum menntastofnunum og heilbrigðisstofnunum. Þeir vinna m.a. við rannsóknir, vöruþróun, markaðsmál, kynningarmál, stjórnun og ráðgjöf

deila á facebook

Hafðu samband

  • Skrifstofa Matvæla- og næringarfræðideildar
    Sími 543 8408
    mn@hi.is

    Opið þriðjudaga og fimmtudaga
    kl. 9:00-16:00 og
    miðvikudaga kl. 9:00-12:00

Rannsóknir

Lógó RÍN

Lógó - samstarf opinberu háskólanna