Nám
Matvæla- og næringarfræði er sjálfstæð deild innan Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands frá og með 1. júlí 2008. Deildin leitast við að vera í fremstu röð með vönduðum rannsóknum og kennslu sem stenst samanburð á alþjóðlegum vettvangi. Matvæla- og næringarfræðideild er nú ein öflugasta eining Háskólans í rannsóknavirkni á hvert stöðugildi kennara.
Nám í matvælafræði byggir á sterkum grunni raunvísinda, verk- og tæknifræði og veitir innsýn m.a. í heilbrigðisvísindagreinar.
Nám í næringarfræði byggir á sterkum grunni raun-, líf- og heilbrigðisvísinda, og gefur innsýn m.a. í félagsvísindi og upplýsingatækni.
|
Nám í matvæla- og næringarfræði er |
Áhersla er á |
|
Fjölbreytt |
Sjálfstæði |
|
Þverfaglegt |
Vísindaleg vinnubrögð |
|
Krefjandi |
Lausnamiðað nám |
|
Bóklegt og verklegt |
Raunhæf verkefni |
Boðið er upp á þriggja ára, 180 eininga grunnnám til BS gráðu í matvælafræði og í næringarfræði.
Hluti grunnnáms í næringarfræði til BS prófs í greininni er sameiginlegur með öðrum deildum á heilbrigðisvísindasviði sem og verkfræði- og náttúruvísindasviði. Þetta eykur sveigjanleika nemenda í námi þeirra við Háskóla Íslands
- Upplýsingar um grunnnám (úr kennsluskrá)
MS-námið er 120 einingar með rannsóknarverkefni unnið undir handleiðslu og í samstarfi við kennara og samstarfsfólk innanlands og utan. Doktorsnám felur í sér 180 eininga vísindaleg og tæknileg rannsóknarverkefni sem leiða til nýrrar þekkingar og nýsköpunar. Öllum nemendum í rannsóknar- og framhaldsnámi stendur til boða að taka hluta af námi sínu erlendis í samvinnu við leiðbeinendur.
- Uppýsingar um framhaldsnám (úr kennsluskrá)
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Matvæla- og næringarfræðideildar
Sími 543 8408
mn@hi.isOpið þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 9:00-16:00 og
miðvikudaga kl. 9:00-12:00




