Rannsóknir
Lyfjafræðideild er mjög sterk rannsóknareining innan Háskóla Íslands, þar sem stundaðar eru margvíslegar rannsóknir á hinum ýmsu sviðum lyfjafræðinnar.
Rannsóknasamstarf er við fjölmarga aðila innanlands og utan, háskóla, rannsóknarstofnanir og fyrirtæki. Kennarar í lyfjafræði eru aðilar að norrænum og evrópskum kennslu- og rannsóknarnetum sem gefur nauðsynleg tengsl við það sem er að gerast annars staðar og gerir nemendum mögulegt að fara og taka hluta af sínu námi erlendis.
Allir kennarar Lyfjafræðideildarinnar eru virkir vísindamenn á sínu sviði og þátttaka þeirra í hinu alþjóðlega vísinda- og rannsóknarsamfélagi hefur vaxið verulega hin síðari ár. Hér á landi hafa kennarar við lyfjafræðideild haldið og skipulagt alþjóðlegar ráðstefnur, þar sem meðal annars hefur verið fjallað um efnafræði sýklódextrína, klínískar lyfjarannsóknir og slímhimnu-ónæmisfræði, kemómetríu og efnisverkfræði í lyfjaþróun.
Með virkum rannsóknum og kennslu í lyfjafræði er lagt af mörkum í þekkingarsköpun fyrir íslenskt samfélag á sviði heilbrigðis- og lífvísinda. Rannsóknarþjálfun á sviði lyfjafræði nýtist ekki einungis við hefðbundnar lyfjafræðilegar rannsóknir, heldur einnig sem þáttur í stærri heildarmynd rannsókna á heilbrigðissviði. Með vaxandi samstarfi og samvinnu er hægt að takast á við og leysa flóknari og viðameiri verkefni en ella.
Undir lyfjafræðideild heyrir Rannsóknastofnun um lyfjamál sem var stofnuð að frumkvæði Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessors við Lyfjafræðideild, vorið 2007.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Lyfjafræðideildar
Haga, Hofsvallagötu 53
Sími 525 4353
lyf@hi.is Opið mánudaga - fimmtudaga og
annan hvern föstudag frá kl. 10:00-12:00
og 13:00-15:00.
Lokað annan hvern föstudag.
Gagnlegar upplýsingar
CRS Nordic Chapter 2012
Drug Delivery and Targeting
3.-5. júní 2012

