Rannsóknarstofnun um lyfjamál



Rannsóknastofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands (RUL) var stofnuð þann 25. apríl 2007 við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Þar undirrituðu þáverandi heilbrigiðis- og tryggingamálaráðherra Siv Friðleifsdóttir og rektor HÍ, Kristín Ingólfsdóttir stofnsamning til þriggja ára og var hann vottaður af þáverandi menntamálaráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Stofnaðilar RUL eru Háskóli Íslands, Lyfjastofnun, Landlæknisembættið, Landspítali - Háskólasjúkrahús, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og Lyfjafræðingafélag Íslands.

Stjórn RUL á fyrsta fundi 4. júlí 2007

 Stjórn RUL á fyrsta fundi 4. júlí 2007:  
Fremri röð, frá vinstri:  Tinna Laufey Ásgeirsdóttir (Hagfræðistofnun), Rannveig Gunnarsdóttir  (Lyfjastofnun), Unnur Björgvinsdóttir (Lyfjafræðingafélag Íslands).  
Efri röð frá vinstri: Anna Birna Almarsdóttir (Háskóli Íslands), Matthías Halldórsson (Landlæknisembættið), Einar Magnússon (Heilbrigðisráðuneytið), Maria J. Heimisdóttir (Landspítali-Háskólasjúkrahús), Rúna Hauksdóttir Hvannberg (Háskóli Íslands)

Markmið stofnunarinnar er að auka rannsóknir og fræðslu um lyfjanotkun og lyfjastefnu á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi. Stofnuninni er ætlað að vera víðtækur vettvangur rannsókna á sviði lyfjamála, einkum öllu því er lýtur að skynsamlegri lyfjanotkun, lyfjafaraldsfræði og lyfjahagfræði. Markmið RUL er jafnframt að miðla vísindalegri þekkingu um stefnumörkun og stjórnun lyfjamála og laða fræðimenn til starfa á þessu sviði. Starfsemi RUL er þríþætt:

  • Rannsóknir og úttektir á lyfjamálum
  • Þjónustuverkefni á sviði lyfjamála fyrir samstarfsaðila og aðra aðila
  • Símenntun á sviði lyfjamálafræða

Rannsóknastofnun um lyfjamál
Haga
Hofsvallagötu 53
107 Reykjavík
Sími: 525 5217
Fax: 525 4071
Netfang: rul@hi.is

deila á facebook

Hafðu samband

  • Skrifstofa Lyfjafræðideildar
    Haga, Hofsvallagötu 53
    Sími 525 4353
    lyf@hi.is

    Opið mánudaga - fimmtudaga og
    annan hvern föstudag frá kl. 10:00-12:00
    og 13:00-15:00.
    Lokað annan hvern föstudag.