Fyrir nemendur
Lyfjafræði er fræðigrein sem fjallar um lyf frá öllum hugsanlegum sjónarhornum, allt frá þróun nýrra lyfjaefna og lyfjaforma, að framleiðslu, notkun og verkun lyfjanna. Nám í lyfjafræði er fjölbreytt, samsett af bóklegri og verklegri kennslu í hinum ýmsu greinum líf- og raunvísinda, auk félagsvísindagreina.
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og verklegum æfingum, einstaklingsbundnum æfingum og hópæfingum, dæmatímum og umræðutímum, lögð áherslu á kennsluhætti sem stuðla að því að virkja sjálfstæði og frumkvæði nemenda.
Námsleiðir í boði:
| Grunnnám |
Meistaranám |
Doktorsnám |
| Lyfjafræði | Lyfjafræði | Lyfjafræði |
| Lyfjavísindi | Lyfjavísindi |
Aðstaða nemenda
Nemendur hafa aðstöðu á 1. hæð í Haga, þar sem þeir hafa aðgang að lesrými og tölvuveri, auk eldhúss og sjoppu, sem rekin er af nemendum. Einnig er þar ljósritunarvél í eigu Tinktúru - félags lyfjafræðinema. Eins og aðrir nemendur við Háskóla Íslands hafa lyfjafræðinemar aðgang að almennum lesrýmum og tölvuverðum víða á háskólasvæðinu, m.a. í Þjóðarbókhlöðu og á Háskólatorgi, auk annarrar þjónustu, og má þar sem dæmi nefna matsöluna Hámu, og Náms- og starfsráðgjöf.
Kennsla fer að mestu fram í Haga við Hofsvallagötu en nemendur á fyrsta og öðru námsári sækja einnig tíma með nemendum á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og fer sú kennsla fram víða á háskólasvæðinu.
Í Haga eru tvær kennslustofur. Í báðum kennslustofunum er nettenging, tölva og skjávarpi. Einnig nýtir Lyfjafræðideild, ásamt fleiri deildum, kennslustofur að Neshaga 16, sem er næsta hús við Haga.
Í Haga eru þrjár rannsóknastofur fyrir verklega kennslu, auk smærri rannsóknarstofa þar sem kennarar deildarinnar, auk meistara- og doktorsnema, vinna rannsóknarverkefni sín.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Lyfjafræðideildar
Haga, Hofsvallagötu 53
Sími 525 4353
lyf@hi.is Opið mánudaga - fimmtudaga og
annan hvern föstudag frá kl. 10:00-12:00
og 13:00-15:00.
Lokað annan hvern föstudag.
Gagnlegar upplýsingar
CRS Nordic Chapter 2012
Drug Delivery and Targeting
3.-5. júní 2012

