Reglur um inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun



 

30. nóvember 2006

Reglur um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfun

1. gr. Ákvörðun um fjöldatakmörkun.
Læknadeild leggur árlega fyrir háskólaráð rökstuddar tillögur um fjölda stúdenta sem unnt er að taka til náms í læknisfræði og sjúkraþjálfun. Skal beiðni frá læknadeild, þar að lútandi, send háskólaráði fyrir lok nóvember. Háskólaráð afgreiðir tillögur læknadeildar eigi síðar en í janúar.

Ákvörðun um fjölda nýnema, sem teknir eru inn ár hvert, gildir í eitt ár.

2.gr. Inntökupróf.

Inntökupróf er haldið í júní ár hvert, samkvæmt nánari ákvörðun læknadeildar að höfðu samráði við framkvæmdastjóra kennslusviðs Háskóla Íslands. Prófið er haldið á vegum Háskóla Íslands og í húsnæði á hans vegum.

Læknadeild auglýsir prófið og birtist sérstök lýsing á framkvæmd þess á heimasíðu deildarinnar.

Nemendur skulu vera skráðir sérstaklega til inntökuprófsins, hjá nemendaskrá Háskóla Íslands, áður en þeir ganga til prófsins. Tiltekinn fjöldi, ákveðinn skv. 1. gr., þeirra nemenda sem bestum árangri ná í prófinu, fær rétt til náms í læknadeild Háskóla Íslands, læknisfræði eða sjúkraþjálfun, sbr. 4. gr. Nemandi sem öðlast rétt til náms í læknadeild, að loknu inntökuprófi, skal hefja námið á næsta haustmisseri eftir prófið. Að öðrum kosti hefur hann fyrir- gert rétti sínum til náms í læknadeild á grundvelli þessa inntökuprófs, en þann rétt öðlast þá sá nemandi sem næstur var því að öðlast rétt til náms á grundvelli sama inntökuprófs. Séu tveir eða fleiri nemendur jafnir, öðlast báðir eða allir rétt til náms á næsta haustmisseri.

3. gr. Skráning til inntökuprófs.

Skráningu til inntökuprófsins skal lokið fyrir 20 maí. Skráning getur farið fram, enda þótt nemandi hafi þá ekki lokið stúdentsprófi, en þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi.

Heimilt er, á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga nr. 41/1999 um Háskóla Íslands, að innheimta próftökugjald til að kosta gerð, fyrirlögn og yfirferð inntökuprófa. Ef próftökugjald er innheimt, fer um fjárhæð þess og innheimtu eftir sameiginlegum reglum fyrir Háskóla Íslands.

4. gr. Skrásetning til náms í Háskóla Íslands.

Skrásetningu þeirra, sem þreyta inntökupróf skv. þessum reglum og öðlast rétt til náms í læknadeild, skal lokið fyrir 1. ágúst. Þeir, sem ekki öðlast rétt til náms í læknadeild, eiga þess kost að skrásetja sig, innan sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands.

5. gr. Framkvæmd og námsefni í inntökuprófi.

Undirbúningur prófsins fer fram af hálfu læknadeildar í samstarfi við kennara framhalds-skóla. Prófið tekur tvo daga, með þremur tveggja tíma próftímum hvorn daginn, eða 12 klst. alls.

Í stað hefðbundinna viðtala, sem víða tíðkast við inntöku nýnema, verður prófið að hluta til mat á almennri þekkingu, nálgun og úrlausn vandamála svo og spurningar um siðfræðileg álitaefni. Allt að tveir tveggja tíma próftímar verða nýttir fyrir þennan hluta er gildir 30% af heild. Í þeim hluta er um að ræða krossapróf og stuttar ritgerðir. Þessi prófþáttur byggir ekki á ákveðnu námsefni.

Hinir próftímarnir verða fyrir krossapróf eingöngu (70% hluti) með um tveimur mínútum að meðaltali fyrir hverja spurningu, eða samtals 240 spurningar.

Sá hluti miðast við námsefni framhaldsskóla, svo sem lýst er hér á eftir. Áfangar sem mælt er með til undirbúnings, er lýst í gildandi aðalnámskrá framhaldskóla.

Einkum er miðað við þá áfanga sem eru í kjörnum mála-, náttúrufræði- og félagsfræðibrauta. Áherslur einstakra greina, úr ráðlögðum áföngum geta síðar orðið mismunandi frá einu ári til annars.

 

Þeir áfangar sem lagðir eru til grundvallar fyrir prófið eru eftirfarandi:

a) Eðlisfræði, EÐL 103, 203

b) Efnafræði, EFN 103, 203, 303, 313

c) Enska, ENS 103, 203, 303, 403

d) Félagsfræði, FÉL 103

e) Íslenska, ÍSL 102, 202, 212, 303, 403, 503

f) Náttúruvísindi, NÁT 103, 113, 123

g) Líffræði, LÍF 103, 203

h) Saga, SAG 103, 203

i) Stærðfræði, STÆ 103, 203, 303, 403, 503

j) Tölfræði, STÆ 313

k) Sálarfræði, SÁL 103

Læknadeild tilnefnir umsjónarmenn með samningu prófsins og til að fara yfir prófúrlausnir. Háskólarektor skipar, að fengnum tillögum læknadeildar, prófdómara einn eða fleiri eftir atvikum.

Þar sem ekki er um að ræða krossapróf dæma umsjónarmenn annars vegar og prófdómari hins vegar úrlausnir og gefa sjálfstætt einkunn fyrir úrlausnir. Endanleg niðurstaða er meðaltal þeirra einkunna.

Einkunnir verða reiknaðar með tveimur aukastöfum.

Á heimasíðu læknadeildar skal birta sýnishorn af prófspurningum úr hverjum prófhluta fyrir sig til glöggvunar fyrir þá sem hyggjast þreyta prófið.

 6. gr. Skorir læknadeildar.
Inntökupróf er sameiginlegt fyrir báðar skorir læknadeildar, læknisfræði og sjúkraþjálfun, en heimilt er að hafa mismunandi vægi, í einstökum prófgreinum, fyrir hvora skor enda verði það auglýst sérstaklega. Við innritun í prófið ákveða nemendur fyrir hvora skorina (læknisfræði eða sjúkraþjálfun), prófúrlausn þeirra skuli metin, með því að merkja við þá skor sem við á.

Aðrar deildir geta gerst aðilar að prófinu samkvæmt sérstökum samningi milli deildanna.

 7. gr. Gildistaka o.fl.
Reglur þessar hefur háskólaráð sett á grundvelli tillögu læknadeildar og með vísan til 2. mgr. 13. gr. laga nr. 41/1999, um Háskóla Íslands, sbr. 2. mgr. 89. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands.

Breyttar reglur öðlast þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta í læknadeild frá og með háskólaárinu 2007-2008.

Ákvæði til skýringar.

Um er að ræða próf til inntöku nýnema í nám í læknadeild. Hugtakið .almenn þekking., í skilningi reglna þessara, miðast því við það markmið, og er í sjálfu sér ekki takmarkað. Þannig verður t.d. leitað eftir þekkingu á málefnum líðandi stundar, s.s. á sviði mannlegra þátta, sögu og menningar hvers konar, félagsfræði og heilbrigðisumræðu. Nálgun og úrlausn vandamála, svo og siðfræðileg afstaða, verða metin eftir lausnum sérstakra vandamála sem verða sett fram sem sjúkratilfelli eða annars konar vandamál til úrlausnar. Höfundar prófsins munu, við gerð þess, ákveða fyrirfram hvaða áherslum er verið að sækjast eftir til að byggja ramma utan um einkunnagjöf.

 

Háskóla Íslands, 30. nóvember 2006.

 

deila á facebook

Hafðu samband

  • Skrifstofa Læknadeildar, Læknagarði 4.hæð, sími 525 4881, medicine@hi.is
    Opið virka daga kl. 10:00-16:00
  • Námsbraut í geislafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
    Opið mánudaga-fimmtudaga
    kl. 8:30-12:30
  • Námsbraut í lífeindafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
    Opið mánudaga-fimmtudaga
    kl. 8:30-12:30
  • Námsbraut í sjúkraþjálfun, Stapa, sími 525 4004, physiotheraphy@hi.is
    Opið virka daga kl 10:00-12:00 og 13:00-15:00
  • Lýðheilsuvísindi, Stapa,
    sími 525 4956, publichealth@hi.is
    Opið mánudaga-fimmtudaga
    kl. 9-12 og 13-14