Móttaka nýnema
Kæri nýnemi, velkominn í nám við Læknadeild Háskóla Íslands
Margt í boði
Á haustin eru haldnir nýnemadagar í Háskóla Íslands. Þá fara fram kynningar á þeirri þjónustu sem stendur stúdentum tið boða og ýmsir skemmtilegir viðburðir. Dagarnir eru haldnir til þess að bjóða nýnema velkomna og kynna þeim lífið og þjónustuna í Háskólanum. Dagskráin fer að mestu fram á Háskólatorgi og verður margt gagnlegt í boði. Þar má nefna gönguferð og kynningu á háskólasvæðinu, örfyrirlestra um námsráðgjöf og skiptinám, kynningu á þjónustu Félagsstofnunar stúdenta og margt fleira. Einnig verða helstu þjónustustofnanir með kynningarbása þar sem nemendur geta fengið svör við fjölmörgum spurningum.
Lífið í Háskólanum kynnt
Stúdentaleikhúsið og Háskólakórinn verða með uppákomur í hádegishléum og nemendafélögin og Stúdentaráð verða með kynningarbása þar sem félagslífið og starf Stúdentaráðs verður kynnt.
Verið velkomin - verið með
Nýnemar, sem og aðrir stúdentar, eru hvattir til þess að taka virkan þátt í dagskrá nýnemadaganna.
Student.is
Á vefnum student.is má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um fyrstu skrefin og lífið í Háskólanum
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Læknadeildar, Læknagarði 4.hæð, sími 525 4881, medicine@hi.is
Opið virka daga kl. 10:00-16:00 - Námsbraut í geislafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
Opið mánudaga-fimmtudaga
kl. 8:30-12:30 - Námsbraut í lífeindafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
Opið mánudaga-fimmtudaga
kl. 8:30-12:30 - Námsbraut í sjúkraþjálfun, Stapa, sími 525 4004, physiotheraphy@hi.is
Opið virka daga kl 10:00-12:00 og 13:00-15:00 - Lýðheilsuvísindi, Stapa,
sími 525 4956, publichealth@hi.is
Opið mánudaga-fimmtudaga
kl. 9-12 og 13-14

