Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði í grunnnám í læknisfræði og sjúkraþjálfun.
- Nemendur skulu hafa lokið stúdentsprófi, eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) eða frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar.
- Inntökupróf, sem sker úr um hvaða nemendur hefja nám í Læknadeild (læknisfræði og sjúkraþjálfun) er haldið í júní ár hvert. Nemendur skulu vera skráðir sérstaklega til inntökuprófsins.
- Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms í læknisfræði (2012 : 48) og sjúkraþjálfun (2012 : 25) er takmarkaður.
Inntökuskilyrði í grunnnám í geisla- og lífeindafræði.
- Stúdentspróf. Æskilegt er að ljúka stúdentsprófi af náttúrufræðibraut. Ef nám er stundað á öðrum bóknámsbrautum er æskilegt að bæta við sig áföngum sem veita undirbúning í eðlisfræði, efnafræði og líffræði.
- Jafnframt teljast nemendur sem lokið hafa frumgreinadeild HR (áður Tækniháskóla Íslands) eða frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) uppfylla inntökuskilyrði til að hefja nám í Geisla- og lífeindafræðiskor, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar.
- Samkeppnispróf er haldið að loknu fyrsta misseri (í desember) í lífeindafræði og er fjöldi stúdenta sem fær að halda áfram eftir samkeppnisprófin takmarkaður við 30 nemendur.
Sjá reglur (pdf) um val nemenda til náms í geislafræði og lífeindafræði við Læknadeild Háskóla Íslands.
Inntökuskilyrði í framhaldsnám.
- Til að innritast í meistaranám við Læknadeild þarf stúdent að hafa lokið BS-prófi frá Háskóla Íslands, 4. ári við Læknadeild Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi. Miðað er við að nemandi hafi að lágmarki einkunnina 6,5 í aðaleinkunn úr BS-prófi eða samsvarandi námi. Heimilt er að víkja frá reglunni um lágmarkseinkunn hafi umsækjandi t.d. sýnt fram á námshæfni og/eða hæfni í sjálfstæðum rannsóknum.
- Til að innritast í doktorsnám við Læknadeild þarf nemandi að hafa lokið BS-prófi frá Háskóla Íslands, 4. ári í læknisfræði við Læknadeild Háskóla íslands og/eða öðru prófi sem rannsóknanámsnefnd metur að sé samsvarandi. Miðað er við að nemandi hafi að lágmarki 7,25 í aðaleinkunn úr BS-prófi eða samsvarandi námi. Heimilt er að víkja frá reglunni um lágmarkseinkunn hafi umsækjandi t.d. sýnt fram á námshæfi og/eða hæfni í sjálfstæðum rannsóknum. Doktorsefni, sem þegar hafa reynslu í vísindalegum vinnubrögðum, hafa lokið rannsóknum og birt vísindagreinar um vel afmarkað viðfangsefni sem gæti myndað grunn að doktorsritgerð, falla undir sama skipulag og aðrir, þ.e. skipa skal umsjónarkennara og doktorsnefnd, sbr. 11. og 14. gr. reglna um doktorsnám og doktorspróf við Læknadeild HÍ. Doktorsnefndin metur reynslu, rannsóknarvinnu og skrif doktorsefnis til doktorsnáms og leiðbeinir við verklok rannsóknarvinnu, skrif og frágang doktorsritgerðar.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Læknadeildar, Læknagarði 4.hæð, sími 525 4881, medicine@hi.is
Opið virka daga kl. 10:00-16:00 - Námsbraut í geislafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
Opið mánudaga-fimmtudaga
kl. 8:30-12:30 - Námsbraut í lífeindafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
Opið mánudaga-fimmtudaga
kl. 8:30-12:30 - Námsbraut í sjúkraþjálfun, Stapa, sími 525 4004, physiotheraphy@hi.is
Opið virka daga kl 10:00-12:00 og 13:00-15:00 - Lýðheilsuvísindi, Stapa,
sími 525 4956, publichealth@hi.is
Opið mánudaga-fimmtudaga
kl. 9-12 og 13-14

