Algengar spurningar



Algengar spurningar tengdar inntökuprófum í læknisfræði og sjúkraþjálfun

 

Á hvaða braut á ég að fara í framhaldsskóla ef ég stefni á læknisfræði?
Svar: Læknadeild, í samstarfi við Félag íslenskra framhaldsskóla, hefur valið þá áfanga sem inntökuprófið grundvallast á. Læknadeild hefur sérstaklega haft í huga að sem flestir stúdentar af náttúrufræði-, mála- og félagsfræðibrautum geti undirbúið sig fyrir inntökuprófið. Náttúrufræðibraut veitir þó besta grunninn vegna þess að flestir þeirra áfanga sem prófið grundvallast á eru í kjarna náttúrufræðibrauta og auk þess verða raungreinar ríkjandi þáttur í prófinu.

Er boðið upp á einhverja aðstoð, stuðningu eða aðkomu að námi af hendi deildarinnar eða fyrir tilstuðlan hennar vegna inntökuprófanna?
Svar: Sú aðstoð sem deildin leggur sig fram um að veita varðandi inntökuprófin felst í greinargóðum upplýsingum um uppbyggingu og framkvæmd prófsins gegnum netið (heimasíða, tölvupóstur). Sýnishorn af prófspurningum eru á netinu. Engin sérstök námskeið eru haldin af deildarinnar hálfu í tengslum við inntökuprófið.

Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það sé skynsamlegt að taka einhverja kúrsa í háskólanum nú í vor til undirbúnings.
Svar: Það er komið undir þekkingarlegri stöðu nemandans hvaða viðbótarnám myndi gagnast honum. Þeim, sem hafa góða undirstöðu úr framhaldsskóla myndi þó sennilega gagnast best að bæta við sig háskólanámi. Hvaða nám viðkomandi ætti að velja með töku inntökuprófsins í huga, er komið undir því hvar hann er veikastur fyrir þekkingarlega séð.

Hvaða námsefni mun liggja til grundvallar fyrir inntökuprófið?
Svar: Eins og fram kemur í almennum upplýsingum hér á heimasíðunni verður aðallega miðað við þá áfanga sem eru í kjörnum náttúrufræði-, mála- og félagsfræðibrauta. Þeir áfangar sem verða lagðir til grundvallar í prófinu eru því:

  • Eðlisfræði: EÐL 103, 203
  • Efnafræði: EFN 103, 203, 303, 313 
  • Enska: ENS 103, 203, 303, 403
  • Félagsfræði: FÉL 103 
  • Íslenska: ÍSL 102, 202, 212, 303, 403, 503 
  • Náttúruvísindi: NÁT 103, 113, 123, 
  • Líffræði: LÍF 103, 203 
  • Saga: SAG 103, 203 
  • Stærðfræði: STÆ 103, 203, 303, 403, 503 
  • Tölfræði: STÆ 313
  • Sálfræði: 103

Við gerð prófsins er haft náið samstarf við kennara framhaldsskólastigsins. Það mun tryggja að það sem kennt hefur verið í framhaldskólunum undanfarin ár myndi grundvöll fyrir þann hluta inntökuprófsins sem byggir á þekkingu sem nám í framhaldskólum veitir. Lögð hefur verið meiri áhersla á 100, 200 og 300 áfangana, en áfangana 400 og 500.

Hvað skal lesa úr hvaða ritum?
Svar: Nemendum er ráðlagt að kynna sér Aðalnámskrá framhaldsskóla sem fæst í bókaverslunum eða skoða hana á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins. Þar koma fram áherslu- og efnisatriði sem liggja að baki ofannefndum áföngum. Með því að fara yfir þessi atriði á nemandi að geta fundið út hvar hann er veikastur fyrir og hvar hann þarf að bæta sig.

Ég var að spá, hvort að það væri ekki von á bókalista um það sem ætti að lesa fyrir prófið. Stendur til að vera með slíkan bókalista eða verða ekki gefnar frekari upplýsingar um námsefnið en þessir áfangar sem eru nefndir?
Svar: Það verða ekki gefnir út neinir bókalistar fyrir prófið, einungis bent á þau áherslu- og efnisatriði sem koma fram í Aðalnámsskrá framhaldsskóla. Þetta er nýnæmi fyrir flesta nemendur framhaldsskóla en í samræmi við þau vinnubrögð sem tíðkast í háskóla þar sem áhersluatriði í náminu eru fyrst og fremst gefin upp, en nemendur verða síðan sjálfir að afla sér þekkingar um efnið. Á prófum er síðan kannað hvort menn hafi tileinkað sér efnið og geti notað það.

Varðandi efnið til prófs, þurfum við að lesa aftur Njálu og fleiri bækur sem okkur voru kenndar í framhaldsskóla?
Svar: Það er ekki útilokað að á prófinu verði einstaka spurningar sem tengjast Njálu eða svipuðum bókmenntum. Þetta gæti hvort sem er komið í 30% hlutanum um almenna þekkingu eða innan 70% hlutans.

Fáum við reiknivélar/tölvur eða megum við koma með okkar eigin í prófin?
Svar: Læknadeild mun útvega reiknivélar (vasareikna) sem heimilt verður að nota í prófinu og verður unnt að fá þær afhentar á skrifstofu deildarinnar u.þ.b. viku fyrir prófið.
Mikilvægt er að nemendur kynni sér notkun þeirra (þ.e. helstu aðgerðir) mjög vel, vegna þess að reiknivélar af þessu tagi get verið mismunandi og ólíkar þeim sem nemandi notar að  jafnaði.

Hvað má maður eiga von á þungum spurningum á inntökuprófinu ?
Svar: Þyngd prófspurninga er alltaf matsatriði og það sem einum finnst þungt getur öðrum fundist létt. Prófið verður miðað við það að allir sem hafa þá þekkingu sem krafist er til stúdentsprófs af bóknámsbraut ættu að geta náð góðum árangri á prófinu.

Verður við yfirferð prófanna tekið tillit til stúdentsprófseinkunnar?
Svar: Nei.

Hvað áætlið þið ykkur langan tíma til yfirferðar? (svo hægt sé þá að skrá sig í önnur fög eða fara í utanlandsferð).
Svar: Gert er ráð fyrir að það taki allt að einn mánuð að fara yfir úrlausnir og að einkunnir verði birtar eigi síðar en um miðjan júlí. Samkvæmt 4 gr. reglna um inntökuprófið getur nemandi sem tók prófið skráð sig í deildir Háskólans fram til 1. ágúst.

Hvert verður vægi liða?
Svar: Það getur verið breytilegt milli ára hvar áherslan liggur en ávallt verður megináherslan á raungreinar í prófinu.

Verður beitt sálfræðilegu greiningaprófi í viðtali eins og gert er við ráðningar flugmanna þar sem því er beitt sem síu?
Svar: Nei, en í 30% hlutanum verða spurningar sem gætu flokkast sem slíkar og verða þær samdar og farið yfir þær af viðeigandi sérfræðingum.

Hvað komast margir að í læknisfræði/sjúkraþjálfun haustið 2012 ?
Svar: 48 í læknisfræði og 25 í sjúkraþjálfun.

Hvenær eru undirbúningsnámskeið fyrir inntökupróf haldin?
Svar: Engin undirbúningsnámskeið hafa verið haldin á vegum læknadeildar. Undanfarin ár hefur þó verið boðið upp á slík námskeið á annarra vegum sjá

www.inntokuprof.is

www.inntaka.is

deila á facebook

Hafðu samband

  • Skrifstofa Læknadeildar, Læknagarði 4.hæð, sími 525 4881, medicine@hi.is
    Opið virka daga kl. 10:00-16:00
  • Námsbraut í geislafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
    Opið mánudaga-fimmtudaga
    kl. 8:30-12:30
  • Námsbraut í lífeindafræði, Stapa, sími 525 5442, gerda@hi.is
    Opið mánudaga-fimmtudaga
    kl. 8:30-12:30
  • Námsbraut í sjúkraþjálfun, Stapa, sími 525 4004, physiotheraphy@hi.is
    Opið virka daga kl 10:00-12:00 og 13:00-15:00
  • Lýðheilsuvísindi, Stapa,
    sími 525 4956, publichealth@hi.is
    Opið mánudaga-fimmtudaga
    kl. 9-12 og 13-14