Um deildina
Um hjúkrunarfræðideild
Hjúkrunarfræðideild, í þeirri mynd sem hún er í dag, var stofnuð árið 2000 en hafði fram að því verið námsbraut í hjúkrunarfræði og var í tengslum við læknadeild. Hjúkrunarfræðideildin er ung deild en saga hjúkrunar- og ljósmóðurstarfa á Íslandi og jafnframt nám þessara starfsstétta á sér langa sögu. Nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands hófst árið 1973 en fram til ársins 1986 var einnig nám í hjúkrun við Hjúkrunarskóla Íslands. Frá árinu 1986 hefur nám í hjúkrunarfræði á Íslandi einvörðungu verið kennt á háskólastigi. Menntun ljósmæðra færðist frá Ljósmæðraskóla Íslands til námsbrautar í hjúkrunarfræði árið 1996. Með því að færa hjúkrunar- og ljósmæðramenntun á háskólastig varð veruleg breyting á námi þessara starfsstétta hér á landi og hefur hjúkrunarfræðideild (námsbraut í hjúkrunarfræði) jafnan verið í fremstu röð hvað varðar grunnmenntun hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á Vesturlöndum.
Líkt og með aðrar deildir innan Háskólans tekur hjúkrunarfræðideild mið af vísinda- og menntastefnu Háskóla Íslands. Við deildina starfar á fjórða tug fastráðinna kennara auk fjölda stundakennara. Hjúkrunar- og ljósmóðurfræði eru starfsmiðaðar fræðigreinar og nemendur sem brautskrást þurfa að hafa til að bera þekkingu og færni sem er nauðsynleg til að geta veitt faglega og örugga hjúkrunar- og ljósmóðurþjónustu sem miðar að andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Hjúkrunarfræðideildar
Eirbergi, Eiríksgötu 34
Sími 525 4960
hjukrun@hi.is Opið virka daga frá kl. 10:00-12:00
og 12:30-14:00
- Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði
Eirbergi, Eiríksgötu 34
Sími 525 5280
rsh@hi.is
Gagnlegar upplýsingar
- Atburðaalmanak haust 2011 (pdf)
- Eyðublöð
- Geðspekivefurinn
- Handbók fyrir nemendur í grunnámi við Hjúkrunarfræðideild 2011-2012
- Handbók meistaranema 2011-2012 (pdf)
- Húsnæði og aðstaða
- Inntökuskilyrði
- Kennsluskrá
- Kynningarefni
- Náms- og starfsráðgjöf
- Námsmat og reglur
- Samkeppnispróf (numerus clausus)
- Starfsfólk
- Stundatöflur
- Umsóknir


