Rannsóknir



Rannsóknir við hjúkrunarfræðideild

Styrkur hjúkrunarfræðideildar felst meðal annars í fjölbreytilegum bakgrunni kennara og traustri stöðu fræðigreina hjúkrunar- og ljósmóðurfræði í íslensku heilbrigðiskerfi og samfélagi. Kennarar hafa lokið framhaldsnámi og myndað rannsóknasamstarf við margar og ólíkar menntastofnanir erlendis. Flestir hafa stundað nám við virta háskóla í Bandaríkjum Norður Ameríku en einnig á Norðurlöndum, Bretlandi og Hollandi. Tólf af tuttugu og tveimur kennurum deildarinnar, sem hafa doktorsgráðu, hafa öðlast hana frá skólum sem raðað er meðal 100 bestu háskóla í heimi. Birtingar kennara í alþjóðlegum ritrýndum fræðiritum jukust um 60% á milli tímabilanna 2001-03 og 2004-06. Meðaltal rannsóknastiga árið 2006 samkvæmt stigamati HÍ var 30 stig miðað við full stöðugildi og hefur aukist um 62% frá árinu 1999. Rannsóknasamstarf bæði innan og milli fræðigreina, innan lands og erlendis, hefur vaxið að sama skapi og hafa slíkar birtingar tvöfaldast á fyrrgreindu tímabili.

Rannsóknastyrki sækja kennarar einkum í Rannsóknasjóð Háskóla Íslands, Vísindasjóð LSH og Vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður í framhaldsnámi fá í vaxandi mæli styrki úr Rannsóknanámssjóði RANNÍS. 

deila á facebook

Hafðu samband

  • Skrifstofa Hjúkrunarfræðideildar
    Eirbergi, Eiríksgötu 34
    Sími 525 4960
    hjukrun@hi.is

    Opið virka daga frá kl. 10:00-12:00
    og 12:30-14:00