Nám



Um námið í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

Upplýsingar um grunnnám

Upplýsingar um framhaldsnám

Kennsla í hjúkrunarfræði hófst við Háskóla Íslands í október árið 1973. Námsbraut í hjúkrunarfræði var gerð að sjálfstæðri deild árið 2000. Hjúkrunarfræðideild hefur jafnan verið í fremstu röð hvað varðar grunnmenntun hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á Vesturlöndum.

Áhersla er lögð á að nemendur hafi tekið ákvörðun um sérsvið og lokaverkefni þegar þeir hefja nám. Einnig að þeir hafi rætt við væntanlegan leiðbeinanda og óski eftir honum í umsókn sinni. Upplýsingar um kennara hjúkrunarfræðideildar (pdf).

Hjúkrunarfræðideild annast kennslu og rannsóknir í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði. Við deildina er boðið upp á eftirfarandi námsleiðir:

BS-nám í hjúkrunarfræði (240 einingar)

Ljósmóðurfræði (120 einingar að loknu BS- námi í hjúkrunarfræði)

Diplómanám á sérsviðum hjúkrunar (74 einingar í skurð- eða svæfingarhjúkrun)

Meistaranám í hjúkrunarfræði (120 einingar)

Meistaranám í ljósmóðurfræði (120 einingar)

Þverfaglegt nám í upplýsingatækni (120 einingar) - ekki í boði 2011-2012

Þverfræðilegt nám í lýðheilsuvísindum (120 eða 180 einingar)

Doktorsnám í hjúkrunarfræði (180 einingar)

deila á facebook

Hafðu samband

  • Skrifstofa Hjúkrunarfræðideildar
    Eirbergi, Eiríksgötu 34
    Sími 525 4960
    hjukrun@hi.is

    Opið virka daga frá kl. 10:00-12:00
    og 12:30-14:00