Um heilbrigðisvísindasvið



Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins. Á heilbrigðisvísindasviði eru sex deildir: hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild, læknadeild, matvæla- og næringarfræðideild, sálfræðideild og tannlæknadeild.

Góður undirbúningur undir framtíðina

Markmið heilbrigðisvísindasviðs er að mennta heilbrigðisstarfsmenn í fremstu röð, mjög hæfa til að sinna hinu fjórþætta hlutverki heilbrigðiskerfisins; þjónustu við veikt fólk, rannsóknum, kennslu og samfélagi. Nútíma heilbrigðisþjónusta er teymisvinna og er lögð áhersla á samþáttun í grunnámi innan sviðsins. Heilbriðgðisvísndasvið starfar í nánu samstarfi við Landspítala - Háskólasjúkrahús, heilsugæsluna, sem og aðrar heilbrigðisstofnanir.. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar á sviði heilbrigðisvísinda koma að kennslu og rannsóknum við sviðið. Nemendur við sviðið fara auk þess í starfsnám á heilbrigðisstofnanir um allt land.

Öflugar rannsóknir

Nemendur útskrifaðir frá heilbrigðisvísindasviði hafa haldið áfram í námi við fremstu háskóla heims og rannsóknir við sviðið eru afar öflugar. Háskóli Íslands hefur lagt grunninn að heilbrigðiskerfi þjóðarinnar, er þar í forystuhlutverki og tekur það hlutverk sitt alvarlega. Á hverjum degi er unnið að því að leita leiða til þess að koma í veg fyrir og meðhöndla sjúkdóma.

Færni í mannlegum samskiptum

Heilbrigðisþónusta byggir á tveimur meginþáttum, vísindum og þekkingu annars vegar og samskiptum við fólk hins vegar. Nemendur við sviðið öðlast góða færni í mannlegum samskiptum, því það er nauðsynlegt hverjum þeim sem starfar í heilbrigðisgeiranum að kunna að takast á við erfitt umhverfi sjúkdóma bæði í gleði og sorg.

deila á facebook

Hafðu samband