Þjónusta innan heilbrigðisvísindasviðs
Á Heilbrigðisvísindasviði er starfrækt skrifstofa með stoðþjónustukjarna undir stjórn forseta fræðasviðsins. Á skrifstofunni starfar, auk forseta, rekstrarstjóri sem annast fjármálastjórn fræðasviðsins og daglega stjórnun, starfsmannastjóri, markaðs- og vefstjóri og tækja og tæknimaður. Upplýsingar um símanúmer og netföng starfsmanna á skrifstofunni.
Undir skrifstofu fræðasviðsins heyra skrifstofur heilbrigðisvísindadeildanna.
Á skrifstofunni er stoðþjónustukjarni sem sinnir ýmsum verkefnum fyrir fræðasviðið, deildir þess og stofnanir. Skrifstofan sinnir allri almennri þjónustu við nemendur og kennara og annast einnig ýmis sérhæfð mál.
Meðal verkefna skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs og deilda sviðsins eru:
Kennslumál
- Kennsluskrárgerð, námsráðgjöf, stundaskrárgerð og bókun kennsluhúsnæðis, móttaka nýnema, afgreiðsla erinda nemenda o.fl.
Þjónusta við rannsóknir kennara
- Aðstoð við gerð umsókna til sjóða, utanumhald um rannsóknareikninga, aðstoð við gerð árlegrar rannsóknaskýrslu o.fl.
Starfsmannamál
- Gerð starfslýsinga, framkvæmd starfsmannastefnu og umsjón með eftirfylgni með starfsmannasamtölum, móttaka nýrra starfsmanna o.fl.
Markaðs- og kynningarmál
- Umsjón með kynningarefni, vefmálum, hollvinastarfi o.fl.
Alþjóðamál
- Málefni erlendra nemenda og starfsmanna o.fl.
Umsjón með upplýsingatæknimálum
- Tölvuþjónusta, staðtölur, skjalastjórnun, bókasafnsþjónusta
Tæknileg aðstoð
- Aðstoð á rannsóknastofum, með innkaupum og umsjón með sérhæfðum efnum, tækjum og búnaði o.fl.
Almenn þjónusta
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Hafðu samband
- Skrifstofa Heilbrigðisvísindasviðs
2. hæð Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16
hvs@hi.is

