Yfir fimm hundruð nýnemar hefja grunnnám við Menntavísindasvið

Nýnemar í grunnnámi við Menntavísindasvið voru boðnir velkomnir til náms í morgun. Dagskráin hófst með ávarpi Kristínar Ingólfsdóttur rektors og Jóns Torfa Jónassonar forseta Menntavísindasviðs. Rektor bauð nýnema velkomna og sagði ánægjulegt að fá að ávarpa þau við upphaf háskólanáms við Menntavísindasvið. Hún sagði hlutverk Háskóla Íslands vera tvíþætt, að styrkja einstaklingana sem þangað koma og veita þeim menntun sem stæðist alþjóðlegar gæðakröfur og jafnframt að styðja þjóðfélagið. Hún hvatti nemendur til að vera óhræddir við að hafa samband við kennara eða annað starfsfólk ef þeir væru óánægðir með eitthvað því afar mikilvægt væri að fá fram sjónarmið nemenda. Hún óskaði þess að öllum ætti eftir að líða vel í því 15 þúsund manna samfélagi stúdenta og starfsfólks sem Háskóli Íslands er.

Jón Torfi sagðist vænta mikils af samstarfi við nemendur og að höfuðstefnumið í vetur væru að sjá innbyrðis samstarf nemenda, og nemenda og kennara, blómstra. Hann sagði að kennarar gerðu kröfur til nemenda og nemendur ættu að gera kröfur til kennara en mikilvægastar væru þó þær kröfur sem við gerum til okkar sjálfra og að námið væri á ábyrgð hvers og eins.

Þá fóru nemendur á kynningarfundi með deildarforsetum og brautarstjórum og fengu upplýsingar um námið og námsfyrirkomulag. Því næst sáu stúdentar í stúdentafélagi Menntavísindasviðs um að skipta nýnemum í hópa og leiða þá um húsakynni sviðsins þar sem þeir fengu kynningu á þjónustunni. Farið var í smiðju, bókasafn, til náms- og starfsráðgjafa, alþjóðafulltrúa, bóksölu, þjónustuver og víðar, auk þess sem nemendur fóru í hópefli. Í hádeginu bauð svo stúdentafélagið upp á grillaðar pylsur.

 

 


24.8.2009 15:20

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.