Vísindavefur HÍ fagnar 10 ára afmæli

Á þessu ári fagnar Vísindavefur Háskóla Íslands 10 ára afmæli og verður afmælisárinu fagnað með ýmsum hætti.

Á sjálfan afmælisdaginn, 29. janúar,verður haldið málþing um vísindamiðlun frá ólíkum sjónarhornum.

Í kjölfarið fylgir fjögurra fyrirlestra röð fyrir almenning: Vísindaeyjan: Landnám, loftslag og haf. Þar verður meðal annars sagt frá landnámi á úthafseyjum, breytingum á landslagi Íslands vegna bráðnunar jökla og hvaða stefnu loftslagsmál í heiminum munu taka á næstunni.

Í marsmánuði verður haldið áfram með árlega fyrirlestraröð sem er sérstaklega ætluð fjölskyldufólki: Vísindi á verði bíóferðar.

Nokkrar nýjungar verða kynntar á afmælisárinu. Meðal annars er stefnt að því að notendur geti sótt sér svör með hlaðvarpi (podcast) og eins er ætlunin að gera stuttar myndir sem notendur geta horft á, hvort sem er á YouTube eða Vísindavefnum.

Þriggja ára Evrópuverkefni Vísindavefsins lýkur á afmælisárinu. Í verkefninu var skoðað hvernig best er að miðla vísindum á Netinu til barna og unglinga.

Á síðasta ári heimsótti rúmlega 1 milljón manns Vísindavefinn og fletti þar rúmlega 2.3 milljónum síðna. Á meðal þeirra spurninga sem lesendur fengu svar við má nefna, hvernig myndast öldur á hafinu, hvernig verka rafhlöður í farsímum, hvaða afleiðingar hafa pólskipti fyrir lífið á jörðinni, eru til vísindalegar útskýringar á Nóaflóðinu og hvernig er hægt að berja eitthvað augum?

Hlutverk Vísindavefsins er að miðla vísindum til almennings og frá því vefurinn var stofnaður hafa birst um 8200 svör um vísindi við spurningum frá almenningi. Alls hafa um 800 höfundar svarað spurningunum.


25.1.2010 12:49


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...