Vísindamenn við HÍ fá yfirgnæfandi meirihluta styrkja úr Rannsóknasjóði
Vísindamenn við Háskóla Íslands fá yfirgnæfandi hluta þeirra styrkja til nýrra rannsóknarverkefna sem veittir eru úr Rannsóknasjóði fyrir árið 2010. Vísindamenn við HÍ fá báða öndvegisstyrki sem Rannsóknasjóður veitir að þessu sinni. Ivan Shelykh, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, hlýtur 20.470.000 kr. til afburðaseturs í ljósskauteindatækni og Sigurður S. Snorrason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, hlýtur 16.372.000 kr. vegna verkefnisins “Endurtekin mynstur þróunar höfuðbeina bleikju, - erfðir og þroskunarfræðileg gangvirki.”
Samtals fær því HÍ 36.842.000 kr. í öndvegisstyrki vegna þessara tveggja verkefna.
Að auki fær Háskóli Íslands samtals 28.040.000 kr. í svokallaða rannsóknastöðustyrki. Af þeirri fjárhæð fær Stofnun Árna Magnússonar 4.640.000 kr.
Rannsóknastöðustyrkir til HÍ eru eftirfarandi:
Egill Skúlason, HÍ, Rafefnafræðileg binding CO2, 4.640.000 kr.
Heidi Elizabeth Pardoe, HÍ, Fjölbreytileiki íslenska þorsksstofnsins og þýðing hans fyrir sjálfbæra fiskveiðistjórnun, 4.440.000 kr.
Ívar Örn Benediktsson, HÍ, Jökulgarðarnir á Taymyr - jaðarsvæði Karahafsísbreiðunnar á síðustu jökulskeiðum, 4.440.000 kr.
Jón Þór Bergþórsson, HÍ, Virkni erfðabreytileika blöðruhálskrabbameins sem nýlega voru staðsettir við MYC æxlisgenið á litningi 8q24, 4.940.000 kr.
Sigríður Rut Franzdóttir, HÍ, Frumuræktarlíkan af myndun mannslungans, 4.940.000 kr.
Að auki fær Jóhanna Katrín Friðriksdóttir hjá Stofnun Árna Magnússonar, styrk að upphæð 4.640.000 kr. fyrir verkefnið Rannsóknir í Hrólfs sögu Gautrekssonar,
Verkefnastyrkir til HÍ í verkfræði, tæknivísindum og raunvísindum eru eftirfarandi:
Andreas Pedersen, HÍ, Dreifðir tölvureikningar og langtíma framvinda í efnum, 3.540.000 kr.
Guðmundur G. Haraldsson, HÍ, Metoxyl setin eterlípíð, 6.380.000 kr.
Ingvar Helgi Árnason, HÍ, Sexhringir frumefna í flokki 14, 6.220.000 kr.
Lárus Thorlacius, HÍ, Hagnýt þyngdarfræði, 6.030.000 kr.
Oddur Ingólfsson, HÍ, Sólarorkudrifin efnahvörf með lágorkurafeindum á yfirborðum, 7.010.000 kr.
Verkefnastyrkir til HÍ í náttúruvísindum og umhverfisvísindum
Árný Erla Sveinbjörnsdóttir, HÍ, Fornveðurfar lesið úr samsætumælingum á EEM-ískjarnanum, NV-Grænlandi, 5.880.000 kr.
Áslaug Geirsdóttir, HÍ, Snöggar loftslagsbreytingar á Íslandi á nútíma, 6.935.000 kr.
Helgi Björnsson, HÍ, Rannsóknir á rúmmálsbreytingum, afkomu og flæði jökla með fjarkönnun úr gervitunglum, 6.000.000 kr.
Jón Eiríksson, HÍ, Áhrif gjóskufalls á götungasamfélög á hafsbotni, 3.830.000 kr.
Ólafur S. Andrésson, HÍ, Víðtæk greining á stórsameindum í fléttusamlífi (lífefnafræði, lífeðlisfræði), 5.503.000 kr.
Sigrún Hreinsdóttir, HÍ, Þensla í jarðhitakerfum: kviku innskot og/eða aukinn þrýstingur í jarðhitakerfinu? Athugun á Krísuvíkursvæðinu, 5.914.000 kr.
Zophonías O. Jónsson, HÍ, Ný tengsl milli lífsnauðsynlegra AAA+ ATPasa flóka, 6.470,000
Verkefnastyrkir til HÍ í heilbrigðisvísindum og lífvísindum eru eftirfarandi:
Einar Stefánsson, Landspítali-háskólasjúkrahús og prófessor við Læknadeild HÍ, Súrefnismettun augnbotna í gláku, 4.035.000 kr.
Eiríkur Steingrímsson, HÍ, Umritunarþátturinn MITF og val markgena í litfrumum og sortuæxlum, 6.580.000 kr.
Ines Thiele, HÍ, Kerfislíffræði meðfæddra efnaskiptagalla, 6.660.000 kr.
Lorelei Mucci, HÍ / Harvard University, Þáttur svefnvenja og melatóníns í blöðruhálskirtilskrabbameini, 5.970.000 kr.
Magnús Gottfreðsson Landspítali-háskólasjúkrahús og prófessor við Læknadeild HÍ, Meinvaldar samfélagslungnabólgu á Landspítala, 3.233.000 kr.
Milan Chang Gudjonsson á Rannsóknarstofa Háskóla Íslands og LSH í öldrunarfræðum, The effect of midlife physical activity and body mass index on cognitive function and brain atrophy among older adults: 26 years of follow-up, 2.800.000 kr.
Sigríður Klara Böðvarsdóttir, HÍ, Hlutverk BRCA2 við að viðhalda litningaendum og stöðugleika litninga, 4.370.000 kr.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, Sumarexem í hestum: Framleiðsla á ofnæmisvökum í byggi og þróun á ónæmismeðferð, 6.890.000 kr.
Stefán Sigurðsson, HÍ, Umritun DNA með RNA pólímerasa II og DNA skemmdir, 5.508.000 kr.
Valgerður Andrésdóttir, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, Innbyggðar varnir lífvera gegn retroveirusýkingum 5.470.000 kr.
Verkefnastyrkir til HÍ í félagsvísindum og hugvísindum:
Brynhildur Davíðsdóttir, HÍ, Heildaráhrif á samfélagið við rafvæðingu samgangna á Íslandi (TIAe-), 3.180.000 kr.
Höskuldur Þráinsson, HÍ, Málbreytingar í rauntíma í íslensku hljóðkerfi og setningagerð, 6.902.000 kr.
Jakob Smári, HÍ, Hugsanastjórn og stýriferli í áráttu og þráhyggjuröskun 3.540.000 kr.
Jóhannes Gísli Jónsson, HÍ, Málfræðilegar formdeildir og hlutverksliðir með hliðsjón af miðlunarhætti, 5.425.000 kr.
Maria Elvira Mendez Pinedo, HÍ, Hlutverk dómstóla við að tryggja réttindi einstaklinga sem leiða af Evrópurétti: Íslenskt sjónarhorn, 3.280.000 kr.
Ragna Benedikta Garðarsdóttir, HÍ, Leiðir minni efnishyggja til meiri velsældar?: Rannsóknir á lífsgildabreytingum á Íslandi og Bretlandi, 4.875.000 kr.
Valdimar Tr. Hafstein, HÍ, Lögverndun "ókunns höfundar": Félagsleg sköpun og hugverkaréttur, 4.370.000 kr.
Stofnun Árna Magnússonar hlýtur eftirfarandi tvo styrki í félagsvísindum og hugvísindum:
Haraldur Bernharðsson, Stofnun Árna Magnússonar, Miðaldahandrit eddukvæði: rafræn útgáfa og lemmaður orðstöðulykill, 3.390.000 kr.
Margrét Eggertsdóttir, Stofnun Árna Magnússonar, Menningarlegt og félagslegt hlutverk íslenskra kvæða- og sálmahandrita eftir siðskipti, kr. 5.900.000
26.1.2010 16:39



