Vísindamenn HÍ hljóta myndarlega styrki úr Umhverfis- og orkurannsóknarsjóði



Úthlutað hefur verið úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2009. Markmið sjóðsins er að veita vísindamönnum og öðrum sérfræðingum á sviði umhverfis- og orkumála tækifæri til að hrinda góðum rannsóknahugmyndum í framkvæmd. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna vísindamanna sem starfa við háskóla- og rannsóknastofnanir þeirra.

Eftirfarandi verkefni vísindamanna Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ hljóta styrk úr Umhverfis- og orkurannsóknarsjóði OR árið 2009:

Binding koltvíoxíðs í bergi á Hellisheiði
Sigurður Reynir Gíslason
kr. 12.000.000

Náttúrulegt varmatap jarðhitasvæða og kæling bergs og kviku
Magnús Tumi Guðmundsson
kr. 2.700.000

Sóley langtímaáhrif loftslagsbreytinga á plöntur og gróður á Íslandi
Þóra Ellen Þórhallsdóttir
kr. 2.622.000

Yfirborðskortlagning íslenskra jökla á heimskautaárunum 2008-2009
Helgi Björnsson
Háskóli Íslands
kr. 2.500.000

Mengun og veðurfarsbreytingar
Þröstur Þorsteinsson
kr. 2.500.000

Hagnýt stýrikerfi byggð á tímasvörunum kerfa
Anna Soffía Hauksdóttir
kr. 2.000.000

Hagrænt mat á þjónustu vistkerfa Heiðmerkur
Brynhildur Davíðsdóttir
kr. 2.000.000

Ákvarðanataka fyrir nýtingu jarðhitasvæða
Halldór Pálsson
kr. 2.000.000

Greining á útfellingum í varmaskiptum
Ólafur Pétur Pálsson
kr. 2.000.000

Lækkun á orkunotkun við grænmetisræktun með notkun ljósdíóða
Sigurður Brynjólfsson
kr. 2.000.000

Gæðaeftirlit og öryggi neysluvatns
Sigurður Magnús Garðarsson
kr. 2.000.000

Áhættustýring í íslenskum orkufyrirtækjum
Birgir Hrafnkelsson
kr. 1.000.000

Sjálfbær orkuþróun
Brynhildur Davíðsdóttir
kr. 1.000.000

Finnst blýmengun í neysluvatni á Íslandi
Hrund Ólöf Andradóttir
kr. 1.000.000

Sérstaða íslenskra álvera
Páll Jensson
kr. 1.000.000

Jarðvarmavirkjun í Djiboutji hagfræðileg úttekt, arðsemismat og samningagerð
Páll Jensson
kr. 1.000.000

Rafakstur
Páll Jensson
kr. 4.950.000

Betri og fjölþættari nýting orku og efna í jarðhitavökva
Bernhard Pálsson
kr. 4.500.000

Áhrif hlýnunar jarðar á fráveitukerfi OR
Hrund Ólöf Andradóttir
kr. 2.875.000

Nýting efna í jarðhitagasi
Guðmundur Óli Hreggviðsson
kr. 2.500.000