Vinnuferð Skjaldar, forvarnafélags hjúkrunarfræðinema við Háskóla Íslands

Það sem byrjaði sem hugmynd fjögurra hjúkrunarnema í heilroki á kaffihúsi einn sunnudagsmorgun á vordögum í fyrra, hefur nú alið af sér frumburð sinn. Burðurinn heitir Skjöldur og telur nú hátt í 40 félagsmenn.

Föstudaginn 18. september lögðu nemendur á 4. ári af stað upp í Brekkuskóg í vinnuferð. Það var þéttskipuð dagskrá sem beið nemanna og var strax hafist handa á föstudagskvöldinu. Helga Sif Friðjónsdóttir hóf dagskrána sem miðaði að því að koma nemum út fyrir þægindaramma sína og hvetja til umhugsunar um sjálfsmynd. Nemendur lýstu fyrirmyndum sínum í fyllstu einlægni aðra stundina og fundu sig svo í villtri dansveiflu þá næstu, allt að beiðni kennarans.

Laugardagurinn hófst svo með leikfimiæfingum kl. 8. Nemendur mættu stundvíslega, fettuðu sig og brettu áður en farið var inn í hús og vinnan var formlega hafin. Nemendur unnu nánast sleitulaust ásamt kennurum til kl. 17 og var afrakstur vinnunnar augljós öllum sem inn í fundaraðstöðuna komu. Að kvöldi dags var svo fírað upp í grillum og tóku menn hraustlega til matar síns. Lög voru samþykkt og kosið til nýrrar stjórnar. Formaður, gjaldkeri og ritari eru á 4. námsári og var þeim gefið umboð til að útnefna tvo nema á 3. ári í stöðu meðstjórnenda sem munu sitja tvö kjörtímabil.

Stjórn Skjaldar veturinn 2009-2010 er skipuð
Önnu Tómasdóttur, formanni
Örnu Garðarsdóttur gjaldkera
Margréti Malenu Magnúsdóttur, ritara

Skjöldur
Styrkleikar Skjaldar felast í mannauði og hugsjón. Allir sem koma að félaginu deila sömu hugsjón um tilgang félagsins og leggja metnað sinn í að allt það sem félagið stendur fyrir og gefur út í sínu nafni, sé byggt á gagnreyndri þekkingu. Fræðilegur grunnur félagsins felst í nánu samstarfi við kennara sem deila sömu hugsjón. Þessir fræðimenn eiga mikla þakkir skildar fyrir störf þeirra í þágu félagsins en þær leggja til dýrmæta sérfræðiþekkingu sem fáir búa yfir. Fræðilegar stoðir félagsins hvíla því á herðum þeirra:

Dr. Brynja Örlygsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild HÍ
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild HÍ
Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild HÍ
Dr. Sóley Sesselja Bender, prófessor við Hjúkrunarfræðideild HÍ

Stofnfélagar Skjaldar hafa notið þess að fá að vinna með þeim að stofnun félagsins og lært mikið í ferlinu. Þeim þökkum við af alhug.

Stofnfélagar Skjaldar eru Lilja Þórunn Þorgeirsdóttir, Þórey Rósa Einarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Orri Jökulsson, hjúkrunarfræðingar.


22.9.2009 08:37


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.