Viltu taka hluta af háskólanámi þínu erlendis?

Alþjóðadagur HÍ er árviss viðburður á Háskólatorgi. Í þetta skiptið fór dagurinn fram þann 5. nóvember og tókst afar vel.  Fjöldi nema úr framhaldsskólunum sótti HÍ heim þennan dag auk þess sem stúdentar HÍ notuðu tækifærið og kynntu sér möguleikana. 

Markmiðið Alþjóðadagsins er að gefa nemendum Háskóla Íslands og raunar nemum annarra háskóla og menntaskóla, tækifæri til að kynnast þeim miklu möguleikum sem bjóðast við að flétta saman námi við Háskóla Íslands og námi við erlenda háskóla.

Nemendum er almennt ekki ljóst hvernig þeir geta auðgað nám sitt með því að taka t.d. eina eða tvær annir í BS eða BA námi við erlendan háskóla eða taka hlut af meistara- eða doktorsnámi í útlöndum.

Háskóli Íslands á í samstarfi við hundruð skóla erlendis og fjölmargir stúdentar skólans fara til náms erlendis í lengri eða skemmri tíma. Nám við Háskólann opnar því ótal dyr út um allan heim og markmið með Alþjóðadeginum er að kynna þessa möguleika.

Á Alþjóðadeginum mættu fulltrúar fjölmargra erlendra háskóla og sendiráða í HÍ til að kynna nám í Evrópu, Bandaríkjunum og í Asíu.

Að fara til náms sem skiptistúdent getur gert þér kleift að komast á auðveldan hátt inn í háskóla sem ella gæti reynst illmögulegt.  Einnig getur skiptinám í ákveðnu landi auðveldað þér að fara síðar í áframhaldandi nám í því landi, þar sem reynslan kemur að góðum notum síðar.


9.11.2009 13:11

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.