Viðurkenningar til nemenda og kennara á Ársfundi Verkfræðistofnunar
Á ársfundi Verkfræðistofnunar HÍ, sem fram fór fimmtudaginn 26. febrúar, var dr. Jón Tómas Guðmundsson heiðraður fyrir framlag sitt til verkfræðirannsókna. Einnig voru veittar viðurkenningar til nemenda fyrir framúrskarandi meistaraverkefni á árinu 2008. Magnús Þór Jónsson, formaður stjórnar, afhenti eftirfarandi nemendum viðurkenningu:
Eysteini Má Sigurðssyni í rafmagns- og tölvuverkfræði:
Eysteinn Már Sigurðsson lauk BS prófi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá verkfræðideild árið 2006 og síðan meistaraprófi í rafmagnsverkfræði frá verkfræðideild í september 2008. Meistaraverkefni hans fjallaði um líkangerð vegna reks á hafís og ber titilinn "Sea ice drift, modelling of the marginal ice zone". Eysteinn vinnur nú á rannsóknasviði Siglingastofnunar.
Grétu Maríu Grétarsdóttur í véla- og iðnaðarverkfræði
Gréta María Grétarsdóttir lauk BS prófi. í véla- og iðnaðarverkfræði árið 2004 og meistaraprófi í iðnaðarverkfræði frá verkfræðideild í júní 2008. Í meistaranámi sínu lagði Gréta María áherslu á verkefna- og gæðastjórnun. Meistaraverkefni hennar ber titilinn „Stjórnun vöruþróunar". Í verkefninu var m.a. gerð úttekt á líkönum vöruþróunar og staða íslenskra fyrirtækja rannsökuð. Gréta María starfar nú sem gæðastjóri Sparisjóðabanka Íslands.
Magna Þór Birgissyni í tölvunarfræði
Magni Þór Birgisson lauk BS prófi í tölvunarfræði frá tölvunarfræðdeild Háskólans í Reykjavík árið 2004 og meistaraprófi í tölvunarfræði frá verkfræðideild Háskóla Íslands í október 2008. Meistaraprófsverkefni Magna Þórs heitir Stærðfræðistafur og fjallar annars vegar um forritun sérhæfðs þreifistafs til að hann geti birt blindum stærðfræðiföll og hins vegar um tilraun sem gerð var til að meta hvernig stafurinn ásamt hjálparhljóðum getur nýst blindum við nám í stærðfræði. Magni Þór starfaði við forritun hjá hugbúnaðardeild Verkfræðistofunnar Hnit frá 1999-2005 en þá var deildin færð yfir til upplýsingatæknifyrirtækisins Samsýnar. Þar starfar hann nú sem þróunarstjóri.
Helgu Þórunni Gunnlaugsdóttur í Umhverfis- og byggingarverkfræði
Helga Þórunn Gunnlaugsdóttir lauk BS prófi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá verkfræðideild Háskóla Íslands árið 2004 og meistaraprófi í byggingarverkfræði frá sömu deild í júní 2008. Meistaraverkefni hennar heitir „Burður vega á þáatíma - Úrvinnsla falllóðsmælinga"og fjallar um hvernig hægt er að nýta mælingar á niðurbeygju á yfirborði vega ásamt hita og rakamælingum á mismunandi dýpi við ákvarðanir um takmarkanir á öxulþunga. Helga Þórunn starfar sem byggingarverkfræðingur hjá verkfræðistofunni Verkís á Ísafirði.

