Verðandi sjúkraþjálfarar kynntu lokaverkefni
Húsfyllir var þegar nemendur á 4. ári í sjúkraþjálfun kynntu lokaverkefni sín til BS prófs miðvikudaginn 13. maí. Að þessu sinni kynntu 22 nemar níu verkefni:
- Áhrif eksentrískrar styrktaræfingar á styrk og hreyfiferil aðfærsluvöðva mjaðma hjá knattspyrnumönnum í efstu deildum karla á Íslandi
Nemendur: Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, Sólveig Þórarinsdóttir og Valgeir Viðarsson
Leiðbeinandi: Árni Árnason, dósent - Áhrif þreytu á vöðvavirkni og liðferla í hnébeygju hjá þremur mismunandi hópum karla
Nemendur: Haraldur Björn Sigurðsson, Hlöðver B. Jökulsson og Vignir Bjarnason
Leiðbeinandi: Þórarinn Sveinsson, dósent - Breytingar á trú á eigin getu einstaklinga í meðferð vegna offitu á endurhæfingastofnunum
Nemendur: Arna Steinarsdóttir, Brynja Hjörleifsdóttir og Jens Ingvarsson
Leiðbeinandi: Kristín Briem, lektor - Ísókínetískur vöðvastyrkur og vöðvalengd aftanlærisvöðva: Samanburður milli knattspyrnumanna sem tognað hafa í aftanlærisvöðvum og þeirra sem ekki hafa tognað
Nemendur: Gunnlaugur Már Briem og Sævar Ómarsson
Leiðbeinandi: Árni Árnason, dósent - Munur á gæðum hreyfistjórnunar í mjóbaki ámilli iðkenda með mismunandi áherslur í þjálfun: Samanburður á handboltakonum og kvendönsurum
Nemendur: Arna Hjartardóttir, Inga Sjöfn Sverrisdóttir og Stella Davíðsdóttir
Leiðbeinandi: Kristín Briem, lektor - Samanburður á vöðvavirkni við spretthlaup hjá knattspyrnumönnum sem tognað hafa í aftanlærisvöðvum á 12 mánaða tímabili fyrir rannsókn og knattspyrnumönnum sem ekki hafa sögu um slíkar tognanir
Nemendur: Eva Sigurjónsdóttir, Halldór H. Jónsson og Páll Vilhjálmsson
Leiðbeinendur: Þórarinn Sveinsson, dósent, og Árni Árnason, dósent - Tengsl hreyfingar og valinna lífsstílssjúkdóma
Nemandi: Fjóla Drön Guðmundsdóttir
Leiðbeinandi: Svandís Sigurðardóttir, lektor - Tilhögun sjúkraþjálfunar strax eftir heilablóðfall
Nemendur: Erla Björk Jónsdóttir, Kristín Harðardóttir
Leiðbeinandi: María H. Þorsteinsdóttir, dósent - Þrenna íþróttakonunna: Er lág beinþéttni hjá íþróttakonum sem þjáðst hafa tímabundið af átröskunum eða tíðaóreglu óafturkræf?
Nemandi: Anna Heiða Gunnarsdóttir
Leiðbeinandi: Svandís Sigurðardóttir, lektor
Síða uppfærð / breytt 13. maí 2009

