Vel heppnuð ráðstefna um stærðfræðinám og sérkennslu að baki

Dagana 14. -16. október var haldin ráðstefna um stærðfræðinám og sérkennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Að ráðstefnunni stóðu Norræn samtök fagmanna, rannsakenda og kennara, sem starfa undir heitinu Nordic Research network on Special Needs Education in Mathematics og var þetta fimmta ráðstefna samtakanna.

Að þessu sinni var áhersla á menntun kennara sem kenna stærðfræði í skóla fyrir alla undir heitinu Challenges in teaching mathematics: Becoming special for all. Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni voru fjórir: Anna Kristjánsdóttir prófessor í stærðfræðimenntun við Háskóla Íslands og Agder Universitet í Noregi,  Dr. Barbara Jaworski, prófessor í stærðfræðimenntun, Loughborough University í Bretlandi, Dr. Hafdís Guðjónsdóttir, dósent í sérkennslu við Háskóla Íslands og Dr. Robert Siegler prófessor í hugrænni sálfræði við Carnegie-Mellon University í Bandaríkjunum. Erindi á málstofum um kennaramenntun, námsumhverfi og tengsl fræða og framkvæmda á sviði stærðfræðináms og sérkennslu fluttu rannsakendur frá öllum norðurlöndunum.

Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðstefnunnar: http://stofnanir.hi.is/norsma/

Á myndinni er Dr. Robert Siegler 


21.10.2009 15:21

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.