Út er komið á vefnum 2. tbl. fimmta árgangs vefritsins Stjórnmál og stjórnsýsla.
Í ritinu er fengist við fjölda viðfangsefna á sviði alþjóðamála, um tengsl sjálfboðasamtaka og hins opinbera, um neyðarlögin og stjórnsýslurétt, markaðsstarf sveitarfélaga og ímynd þeirra, traust á fjölmiðlum, upplýsingatækni, mannréttindi, fjölskyldulíf og fötlun, skipurit opinberra stofnana, ákvarðanafræði og aðdraganda að stofnun íslenska sósíalistaflokksins. Loks eru birtir ellefu bókadómar um nýjar bækur á sviði stjórn- og samfélagsmála.
Fræðigreinarnar eru eftir vísindamenn við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík og almennar greinar eftir kennara og nemendur við H.Í.
15.12.2009 16:00
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.
Tveir harðir sigruðu í...
Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...
Tilnefnd til...
Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.
Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...
Hönnunarkeppni verkfræðinema...
Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.
Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...