Útskrifuðum viðskiptafræðingum frá HÍ gengur vel að fá vinnu

Í janúar 2010 var gerð viðhorfskönnun meðal útskrifaðra nemenda úr grunnnámi viðskiptafræðideildar árin 2003 og 2006. Markmið könnunarinnar var að meta gæði kennslu og náms með því að kanna hvernig námið hefur nýst þeim sem hafa útskrifast frá deildinni. Viðskiptafræðistofnun sá um framkvæmd könnunarinnar.

SAMANTEKT

•    Alls útskrifuðust 188 einstaklingar þessi tvö ár. Gagnaöflun fór fram dagana 5. til 12. janúar 2010 og náðist í 134 einstaklinga. Svarhlutfall er því 71%. Þar af eru rúm 37% karlar og tæp 63% konur sem endurspeglar ágætlega úrtakshópinn. 63,4% þeirra sem svöruðu útskrifuðust árið 2003 og 36,6% árið 2006.

•    Á heildina litið eru nemendur ánægðir með námið en rúm 93% sögðust vera ánægðir eða mjög ánægðir með námið við deildina. Aðeins 1,5% sögðust vera óánægðir. Flestum, eða 76%, gekk vel eða mjög vel að fá vinnu. Rúm 14% höfðu fengið vinnu áður en námi lauk. Flestir, eða tæp 90%, voru í launuðu starfi þegar könnunin fór fram og flestir í fullu starfi. Rúmlega 31% störfuðu í fjármálageiranum og önnur rúmlega 31% störfuðu í þjónustugeiranum. Fæstir stunduðu aukastarf samhliða aðalstarfi.

•     Þegar spurt er um hvernig námið hafi nýst viðkomandi í starfi kemur í ljós að yfirgnæfandi meirihluti, eða tæp 86%, töldu að námið hefði nýst sér vel eða mjög vel í starfi. Flestir, eða 83%, töldu að viðskiptafræðinámið væri tengt eða nátengt núverandi starfi.

•    Rúm 43% höfðu farið í framhaldsnám að loknu grunnnámi. Flestir höfðu farið í Háskóla Íslands en einnig er algengt að nemendur sæki sér framhaldsnám erlendis. Langflestir, eða rúm 91%, telja að grunnnámið hafi undirbúið þá vel eða mjög vel fyrir framhaldsnámið.

•    Þegar spurt er um tryggð kemur í ljós að rúmlega 70% telja það líklegt að mjög líklegt að þeir myndu velja nám við viðskiptafræðideild aftur væru þeir að hefja nám nú og yfirgnæfandi meirihluti, eða um 90%, segja það líklegt eða mjög líklegt að þeir myndu mæla með náminu við aðra.

Ef marka má niðurstöður bendir margt til þess að meðallaun útskrifaðra nemenda úr grunnnámi sé á bilinu 5-600 þús.

Hér má finna könnunina í heild sinni (pdf)


22.1.2010 14:57


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.