Útgáfuteiti í Vesturbæjarlaug í tilefni útgáfu bókarinnar: Geothermal Living

Örn Daníel Jónsson prófessor í viðskiptafræði bauð upp á flatkökur með hangikjöti og kaffi í anddyri Vesturbæjarlaugarinnar miðvikudaginn 2. desember. Tilefnið var útkoma bókarinnar  Geothermal Living sem er gefin út af Háskólaútgáfunni.

 Í bókinni, sem er ríkulega myndskreytt af Klængi Gunnarssyni, er fjallað um áhrif hagnýtingar heita vatnsins á daglegt líf landsmanna. Annars vegar er áherslan á hvernig hugvitssamleg og vandasöm nýsköpun hefur orðið til þess að nálægt 80 prósent orkunotkunar er sjálfbær hér á landi á meðan hún nær aðeins 40 prósentum í Noregi og sex prósentum í Bandaríkjunum. Hinsvegar er reynt að skýra út hvernig og hvers vegna heiti potturinn hefur orðið að helsta samkomustað hérlendis.


4.12.2009 09:17

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.