Upptaka frá fyrirlestri Joseph Stiglitz
Joseph Stiglitz frá Columbia University hélt opinn fyrirlestur í Öskju, stofu 132, mánudaginn 7. september 2009, kl. 12.30
Fullt var út úr dyrum á fundinum og vakti Stiglitz athygli blaða- og sjónvarpsmanna hér á landi. Blaðamaðurinn og prófessorinn Stefán Snævarr fjallaði um Stiglitz í Morgunblaðinu þann 6. september og Egill Helgason ræddi við hann í Silfri Egils sunnudaginn 6. september.
Eins og kunnugt er gerðu íslensk stjórnvöld lánasamning við AGS í nóvember s.l. sem byggir á forsendum þess tíma. Eftir afgreiðslu fyrsta hluta lánsins frá sjóðnum hefur frekari greiðslum verið frestað ítrekað.
Lítil umræða hefur verið um hver raunveruleg áhrif sjóðsins eru hér og að hve miklu leyti aðgerðir stjórnvalda og áætlanir um niðurskurð í ríkisútgjöldum eru samkvæmt kröfum sjóðsins - eða yfirleitt hverjar kröfur sjóðsins eru. Þá hefur lítið verið fjallað um forsendur
lánsins.
Að loknum fyrirlestrinum hófst panelumræða þar sem fram komu Ársæll Valfells lektor, Gylfi Zoega prófessor, Jón Daníelsson prófessor og Lilja Mósesdóttir alþingismaður. Egill Helgason stýrði umræðum.
Upptöku af fyrirlestrinum má nálgast hér
(S.S.)
9.9.2009 09:08



