Ungt fólk og ESB- hvað græðum við á aðild?

Fáni evrópusambandsins
Fáni evrópusambandsins

Ísafold - ungt fólk gegn ESB-aðild, í samstarfi við Orator, félag laganema
við HÍ boða til málfundar um ungt fólk og Evrópusambandið fimmtudaginn
11. mars næstkomandi í sal 101 á Háskólatorgi kl. 11.40-12.20.

Yfirskrift fundarins er ,,Ungt fólk og ESB - hvað græðum við á aðild?" Ræðumenn verða þau Maria Elvira Mendez dósent í evrópurétti, Magnús Árni
Magnússon aðjúnkt í stjórnmálafræði og Tale Marte Dæhlen formaður Ungdom
mot EU í Noregi.

Hvert þeirra mun halda um 10 mínútna erindi. Erindin fjalla um áhrif
mögulegrar aðildar Íslands að ESB á ungt fólk með áherslu á menntun,
lýðræði, atvinnu/atvinnuleysi og fleiri málefni sem snúa að hagsmunum ungs
fólks. Ræðumenn, sem hafa mismunandi skoðanir á þessum málaflokki, munu í
erindum sínum leitast við að svara því hvers vegna eða hvers vegna ekki
ungt fólk ætti að vilja ganga í ESB. Í lok erindanna verða fyrirspurnir
leyfðar úr sal.

Fundurinn verður á ensku.


10.3.2010 09:06


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...