Umsókn um grunnnám á Hugvísindasviði á vormisseri 2010

Dagana 9. til 30. nóvember 2009 verður tekið við umsóknum nýnema til grunnnáms í mörgum námsleiðum á Hugvísindasviði Háskóla Íslands, vegna náms sem hefst á vormisseri 2010. Einungis er hægt að sækja um rafrænt á þessu tímabili. Þær námsleiðir sem eru í boði koma fram á rafrænu umsóknarblaði. Eftirfarandi námsleiðir eru EKKI í boði á vormisseri 2010:

  • Japanska
  • Kínverska
  • Listfræði
  • Ritlist
  • Rússneska
  • Táknmálsfræði
  • Hagnýt íslenska fyrir erlenda stúdenta 

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 30. nóvember 2009. Skila verður fylgigögnum til Þjónustuborðs á Háskólatorgi eins fljótt og auðið er.

RAFRÆN UMSÓKN - VORMISSERI 2010

Mikilvægt er að væntanlegir umsækjendur kynni sér vel upplýsingarnar hér fyrir neðan, áður en lengra er haldið.

Skila þarf staðfestu ljósriti úr framhaldsskóla (ljósriti sem er stimplað af skóla) af öllu stúdentsprófsskírteininu eins fljótt og hægt er. Framangreindur umsóknarfrestur gildir einnig um þá sem ljúka stúdentsprófi í desember 2009. Þeir þurfa að skila stúdentsprófsskírteini jafnskjótt og það liggur fyrir.

Nánari upplýsingar veitir Nemendaskrá HÍ sem er staðsett í Háskólatorgi, 3. hæð, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is.

Nánar um umsóknarferlið.


10.11.2009 11:05


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.