Tveir prófessorar frá HÍ með erindi í Indlandsför forseta
Tveir prófessorar frá Háskóla Íslands, þau Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindasviðs, og Guðrún Gísladóttir prófessor í Líf- og umhverfisvísindadeild, eru í fylgdarliði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í opinberri heimsókn hans til Indlands. Þau fluttu bæði erindi ytra sem hluta af heimsókninni. Ólafur Þ. Harðarson flutti fyrirlestur við Jawaharlal Nehru-háskólann í Delhi í dag að viðstöddum forseta Íslands.
Fyrirlestur Ólafs Þ. Harðarsonar fjallaði um íslensk stjórnmál og samfélagsgerð í samanburði við norræn samfélög.
Í erindinu gerði hann grein fyrir hinu norræna samfélagslíkani og hvaða áhrif núverandi kreppa kunni að hafa á það líkan. Ólafur átti jafnframt fundi með stjórnendum Nehru háskólans um aukið samstarf og undirbúning samstarfssamnings á milli Nehru háskólans og Háskóla Íslands, einkum á sviði félagsvísinda. Tvö málþing voru einnig haldin í TERI stofnunni í dag með þátttöku forseta Íslands og indverskra og íslenskra vísindamanna. Annað málþingið fjallaði um loftslagsbreytingar, bráðnun jökla og jarðvegsrannsóknir í Himalayafjöllum.
Forseti Íslands, dr. R.K. Pachauri, Guðrún Gísladóttir, prófessor Rattan Lal, prófessor við Ohio State háskólann, og gestaprófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, fluttu erindi á málþinginu ásamt öðrum. Þess má geta að prófessor Lal er einn fremsti sérfræðingur heims í jarðvegsfræðum.
Háskóli Íslands gerði samstarfssamning við TERI árið 2008, en dr. Pachauri veitir stofnunni forstöðu. Dr. Pachauri er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur tvívegis haldið fyrirlestur við Háskóla Íslands. Dr. Pachauri er formaður Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC) sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2007.
15.1.2010 18:46



