Tveir kennarar við stjórnmálafræðideild skipaðir í nefnd af forsætisráðherra
Tveir kennarar við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Gunnar Helgi Kristinsson prófessor og Ómar H. Kristmundsson dósent hafa verið skipaðir af Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í nefnd óháðra sérfræðinga sem mun gera tillögur til ríkisstjórnar og Stjórnarráðsins um viðbrögð af hálfu stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, sbr. lög nr. 142/2008, til þess að rannsaka aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða.
Eins og kunnugt er mun rannsóknarnefndin skila ítarlegri skýrslu til Alþingis í lok febrúar og á vettvangi forsætisráðuneytisins hefur verið fjallað um hugsanleg viðbrögð við atriðum sem fram kunna að koma í skýrslunni og beinast að stjórnsýslunni og starfsháttum Stjórnarráðsins.
Auk Ómars og Gunnars Helga, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, sitja í nefndinni þau Kristín Benediktsdóttir, hdl., Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Nefndin skal taka skýrslu rannsóknarnefndarinnar til ítarlegrar umfjöllunar og meta þau atriði sem beinast kunna sérstaklega að stjórnsýslunni og starfsháttum Stjórnarráðsins. Nefndin skal svo fljótt sem auðið er gera tillögur til forsætisráðherra og ríkisstjórnar um hugsanleg viðbrögð við þeim í samræmi við ábendingar rannsóknarnefndarinnar.
27.1.2010 10:56



