Tveggja vikna þýskunámskeið í Tübingen

Deild erlendra tungumála á Hugvísindasviði vekur athygli á því að nemendur við Háskóla Íslands geta sótt um að komast á tveggja vikna námskeið í Tübingen í Þýskalandi í byrjun næsta árs. Þetta námskeið er opið nemendum úr öllum deildum skólans en gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi lágmarkskunnáttu í málinu, t.d. stundað nám í þýsku í framhaldsskóla. 

Nokkrar staðreyndir um námskeiðið:

Talfærninámskeið í Þýskalandi (ÞÝS 208G)

TÍMABIL: 31. janúar til 14. febrúar 2010

STAÐUR: Tübingen í Þýskalandi.

HVERJIR GETA SKRÁÐ SIG?:
Nemendur HÍ sem innrita sig í námskeiðið. Námskeiðið er ekki byrjendanámskeið, lágmarkskunnátta í þýsku er nauðsynleg.

Tungumál eru bónus í öllum störfum, Þýskaland er mikilvægasta viðskiptalaland Íslands.

Námskeiðið gefur 6 ECTS einingar og byggist á tveggja vikna námsferð til Tübingen í Þýskalandi.

Háskólinn í Tübingen skipuleggur námskeiðið í samvinnu við HÍ. Boðið er upp á kennslu í tungumálinu (ekki byrjendakennsla), kynnisferðir og Landeskunde af ýmsu tagi. Nemendur gista hjá fjölskyldum í borginni.

Nemendur greiða einungis flugfar til og frá Frankfurt og rútuferð til og frá Tübingen, auk hluta af uppihaldskostnaði. Das ist alles.

Þeir sem áhuga hafa á námskeiðinu eru hvattir til að afla sér nánari upplýsinga um ferðina hjá Oddnýju G. Sverrisdóttur, dósent í þýsku, oddny@hi.is, símar: 525 4717 og 899 6956.

 Tübingen er sérlega falleg háskólaborg í Suður-Þýskalandi.


10.11.2009 14:51


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.