Tormod Hermansen hélt fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands


 

Tormod Hermansen hélt opinn fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands  föstudaginn 28. ágúst. Fundurinn var vel sóttur og kom Tormod m.a. fram í Kastljósi og í viðtali við Morgunblaðið.

Norskir bankar gengu í gegnum áföll á síðasta áratug. Margt var líkt með því sem hér hefur
gerst, þó allt sé hér dýpra og stórskornara en hjá Norðmönnum. Tormod Hermansen
fjallaði um reynslu sína í Noregi og á Íslandi um áföll í fjármálalífi.
Tormod Hermansen var formaður Tryggingasjóðs innistæðueigenda í Noregi þegar áföllin
gengu yfir og í endurreisn fjármálalífsins. Hann var forstjóri Telenor frá 1995 – 2002 og í
stjórn margra fyrirtækja og sjóða.
Tormod Hermansen hefur veitt fjármálaráðuneytinu ráðgjöf um endurreisn íslensku
bankanna og Bankasýslu ríkisins.

(S.S.)


7.9.2009 11:01

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.