Tímaritið Uppeldi og menntun er komið út

Tímaritið Uppeldi og menntun, seinna hefti 2009 er komið út, með nýju og spennandi efni. Fyrstu tvær greinarnar fjalla um forvarnir og meðferð við hegðunarerfiðleikum barna; Anna Björnsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir skrifa um PMTO-aðferðina og áhrif hennar á hegðunarerfiðleika barna í Hafnarfirði og Sigurborg K. Kristjánsdóttir og Rúnar Sigþórsson fjalla um innleiðingu PMT-verkfæra með starfendarannsókn í leikskóla, í greininni „Svona gerum við“ Kristín Loftsdóttir skrifar um Margbreytileika og fjölmenningarlegt samfélag í námsbókum, en hér fjallar hún um sýn aðalnámskrár grunnskóla og gátlista Námsgagnastofnunar á þessu sviði.
Af hverju vissi ég ekkert um Jón Þórarinsson!, kallar Ingvar Sigurgeirsson grein sína um rit Lofts Guttormssonar og félaga, Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007. Súsanna Margrét Gestsdóttir fjallar um sama rit í grein sem kallast einfaldlega: Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007.

Ritstjóri er Hanna Ragnarsdóttir, dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Uppeldi og menntun er gefið út tvisvar á ári af Menntavísindasviði Háskóla Íslands í samvinnu við Háskólann á Akureyri. Sjá nánar efnisyfirlit

Hægt er að panta ritið og/eða áskrift í síma 525 5980, netfang mvs-simennt@hi.is
Ritið er einnig fáanlegt í Bóksölu kennaranema v/Stakkahlíð, Bóksölu Stúdenta Háskólatorgi, Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi og Pennanum-Eymundssyni, Akureyri


29.1.2010 14:03


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...