Tímaritið Uppeldi og menntun er komið út

Tímaritið Uppeldi og menntun, fyrra hefti 2009 er komið út – stútfullt af góðu efni.  Að þessu sinni hefst ritið á grein Braga Guðmundssonar sem ber heitið Landið er eitt – samfélagið er breitt/breytt Um samvitund Íslendinga og undirstöður hennar. Þá skrifar Kolbrún Þ. Pálsdóttir greinina Frístundaheimili fyrir 6-9 ára börn í reykvísku skólastarfi. Þær Hafdís Guðjónsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir fjalla um skóla án aðgreiningar í grein sinni Látum þúsund blóm blómstra. Stefnumörkun um skóla án aðgreiningar. Síðustu greinina á Aðalbjörg María Ólafsdóttir og ber hún heitið „Þetta er spennandi ... og gefur mikla möguleika“. upplýsingatækni í kennslu sex myndlistarkennara í grunnskólum Notkun tölvu- og. 

Þá eru viðhorfsgreinarnar þrjár að þessu sinni og er það Hildur Skarphéðinsdóttir sem ríður á vaðið með grein sem hún nefnir Helstu nýmæli í lögum um leikskóla og áhrif þeirra á leikskólastarfið.  Þá skrifar Gunnar E. Finnbogason greinina Nútímaskóli – ný grunnskólalög.  Lokaviðhorfið á svo Gestur Guðmundsson Að fara vanbúinn í langferð – ný framhaldsskólalög.

Ritstjóri er Hanna Ragnarsdóttir dósent í fjölmenningarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Uppeldi og menntun er gefið út tvisvar á ári af Menntavísindasviði Háskóla Íslands í samvinnu við Háskólann á Akureyri.

Ritið er fáanlegt í Bóksölu stúdenta, Háskólatorgi og Bóksölu kennaranema v/ Stakkahlíð.
Áskriftarsíminn er 563 3980. Netfang mvs-simennt@hi.is Einnig er hægt að panta einstök tölublöð á sama stað.


3.7.2009 15:23


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...