Tímarit Háskóla Íslands er komið út

Velkomin í Háskóla Íslands
Velkomin í Háskóla Íslands

Tímarit Háskóla Íslands er komið út, troðfullt af greinum um vísindarannsóknir nemenda við HÍ. Ritið er ljómandi lesning fyrir þá sem vilja nálgast fræðandi og fjörlegt efni um það öfluga vísindastarf sem fram fer við HÍ.

Í ritinu, sem er 100 blaðsíður að lengd, er fjallað um fræðslustarf í fangelsum, hopandi jökla, hæfileika presta, undrun útlendinga yfir íslenskri náttúru – VÁ!!!, geðlyfjanotkun barna á Íslandi sem þykir meiri hér en hjá nágrannaþjóðum okkar.

Fjallað er um nýja tækni til varnar tannskemmdum, facebook er skoðuð frá nýju sjónarhorni og sjónum beint að kríum í kreppu. Þá er sjónum beint að mataræði, offitu og auðvitað hreyfingu, sem meðal annars seinkar öldrun og bætir líðan grunnskólabarna.

Óttinn í pólitík er í fókus í tímaritinu, netógnin, hrunið, brandarar tengdir hruninu, samningahegðun Íslendinga og svo Burðarvakinn, sem fækkar svo um munar óvissuferðunum í fjósið.

Margar spennandi greinar eru um nýsköpunarfyrirtæki sem eru sprottin í HÍ. Fjallað er um fyrirtækið Clara sem finnur nálina í heystakknum, gítarstilli sem hefur slegið í gegn hjá Nokia og svo er viðtal við dúxinn sem kastar spjótinu kvenna lengst.

Í tímaritinu er líka spáð í hvort hvalirnir tali íslensku og rætt er við stúdent sem kortleggur alheiminn og annan sem vill vinna bug á sumarexemi í íslenska hestinum.

Þetta er bara brot af því efni sem er í tímaritinu.

Hægt er að óska eftir því að fá Tímaritið sent í pósti með því að senda tölvupóst á hi@hi.is, en blaðið liggur einnig frammi á Háskólatorgi.

Tímaritið má einnig lesa á tölvutæku formi með því að smella hér:

http://www.hi.is/files/skjol/stjornsysla/markads_og_samskiptasvid/kynnin...


26.2.2010 15:53

deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...