Þverfræðilegt fagráð HÍ og Landspítalans um kynheilbrigði stofnað
Þann 7. janúar 2010 var stofnað þverfræðilegt fagráð Háskóla Íslands (HÍ) og Landspítalans (LS) um kynheilbrigði (sexual- and reproductive health). Fagráðið starfar samkvæmt samstarfssamningi HÍ og LS. Það hefur eftirfarandi hlutverk:
Stuðlar að þróun sérfræðiþekkingar á þessu sviði
Er ráðgefandi um kynheilbrigðismál
Tekur þátt í að móta klíníska kennslu á þessu sviði innan LSH
Stuðlar að gagnreyndri og faglegri þjónustu á sviði kynheilbrigðismála
Vinnur að gerð klínískra leiðbeininga á sviði kynheilbrigðismála
Stuðlar að og stendur að rannsóknum á sviði kynheilbrigðismála
Heldur árlegan kynheilbrigðisdag
Í fyrstu stjórn fagráðsins eru:
Sóley S. Bender, forstöðumaður fræðasviðs um kynheilbrigði, formaður, Jenný Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, ritari Ebba Margrét Magnúsdóttir, kvensjúkdómalæknir, gjaldkeri Eyrún Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, meðstjórnandi Linda B. Lýðsdóttir, sálfræðingur, meðstjórnandi
Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar. Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður nálægt einni milljón evra,...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.