Þjónustuver verður kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs
Að undaförnu hefur verið unnið að endurskipulagningu þjónustuvers Menntavísindasviðs og verður það framvegis nefnt kennsluskrifstofa. Þetta er gert í kjölfar þess að verkefni sem tengd eru nemendaskráningu á Menntavísindasviði hafa verið flutt í miðlæga nemendaskrá Háskólans. Kennsluskrifstofan er hluti af skrifstofu Menntavísindasviðs þar sem er öll stjórnsýsla og þjónusta á sviðinu. Björg Gísladóttir sem áður var forstöðumaður þjónustuversins verður skrifstofustjóri nýrrar kennsluskrifstofu.
Öll þjónusta við deildir vegna kennslu verður samhæfð innan kennsluskrifstofu. Þangað flyst verkefnisstjórn fyrir deildir og vettvangsnám og einnig alþjóðamál og umsjón með meistaraverkefnum. Þeim verkefnum þjónustuvers sem ekki hafa verið flutt í miðlæga nemendaskrá verður sinnt á kennsluskrifstofu.
Verkefnisstjórar deilda munu heita deildarstjórar, þeir vinna áfram náið með deildarforsetum og námsbrautarstjórum en sameiginlegt skipulag á verkferlum
innan kennsluskrifstofunnar á að tryggja að fljótt og vel sé hægt að leysa úr málum. Skrifstofan verður í sama húsnæði og þjónustuverið hefur verið. Deildarstjórar og aðrir starfsmenn sem hafa haft skrifstofur á 2. hæð í Enni verða þar áfram og sömuleiðis verður alþjóðafulltrúi enn um sinn á 1. hæð í Enni.
Starfsmenn kennsluskrifstofu
Björg Gísladóttir skrifstofustjóri
Anna María Hauksdóttir verkefnisstjóri
Ásdís Hrefna Haraldsdóttir deildarstjóri íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeildar og uppeldis- og menntunarfræðideildar
Birna E. Gunnarsdóttir fulltrúi
Björg Sigurðardóttir verkefnisstjóri vettvangsnáms á þroskaþjálfa og tómstundabraut
Elfa Þorgrímsdóttir fulltrúi
Elín Jóna Þórsdóttir deildarstjóri kennaradeildar
Gígja Árnadóttir fulltrúi
Guðrún Eysteinsdóttir deildarstjóri og staðgengill skrifstofustjóra
Guðrún Sóley Guðjónsdóttir verkefnisstjóri alþjóðamála
Jóhanna Karitas Traustadóttir verkefnisstjóri
Sigríður Pétursdóttir vettvangsstjóri
Sigríður K. Stefánsdóttir verkefnisstjóri vettvangsnáms á leikskólakennarabraut
Auk þess vinnur Anna Kristín Tumadóttir með starfsfólki kennsluskrifstofu að gerð kennsluskrár.
17.11.2009 09:51



