Þáttur um rannsókn við HÍ sýndur í Sjónvarpinu í kvöld
Núna í kvöld verður þátturinn Hreyfing og hollusta, lykill að framtíð sýndur í Ríkissjónvarpinu. Sýning þáttarins hefst klukkan 21.30. Í þættinum er fjallað um niðurstöður rannsóknar á lífsstíl 7 til 9 ára barna. Rannsóknin sýnir að unnt er að auka hreyfingu og stuðla að hollara mataræði hjá þessum aldurshópi með samstilltu átaki heimila og skóla.
Rannsóknin er samstarfsverkefni sem vísindamenn og framhaldsnemar við Menntavísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands unnu að á árunum 2006 til 2008. Verkefnið miðaði að því að auka heilbrigði barna og var unnið í samstarfi við Menntasvið Reykjavíkurborgar og sex grunnskóla í borginni.
Þátttökuskólunum í rannsókninni var skipt í tvo flokka, þrjá íhlutunarskóla og þrjá samanburðarskóla. Leitast var við að auka daglega hreyfingu barna í íhlutunarskólunum, bæði innan og utan skóla, í samstarfi við kennara og foreldra. Þetta var gert með því að flétta hreyfingu og leikjum inn í kennslu hinna ýmsu námsgreina og með aukinni íþróttakennslu. Þá var leitast við að hafa áhrif á mataræði þeirra til aukinnar hollustu, m.a. með fræðslu og samvinnu við kennara, starfsfólk mötuneyta skólanna og foreldra og var þar fylgt markmiðum Lýðheilsustöðvar.
Í upphafi voru gerðar ýmsar mælingar á nemendum, s.s. á holdafari, þreki, hreyfingu, beinþéttni, mataræði og þáttum sem tengdust lífsstíl þeirra. Mælingarnar voru endurteknar í lok tímabilsins, auk þess sem hreyfimælingar voru gerðar á miðju tímabilinu.
Mælingar í lok tímabilsins leiddu í ljós að mataræði barna í íhlutunarskólunum hafði nálgast markmið Lýðheilsustöðvar mun meir en barna í samanburðarskólunum. Mikil aukning varð á neyslu þeirra á grænmeti og ávöxtum, fiski og lýsi. Neysla barna í íhlutunarskólunum á grænmeti reyndist t.d. 50% meiri en í samanburðarskólunum. Aukning á hreyfingu varð fyrst og fremst á skólatíma og þá einkum meðal drengja. Þá reyndist þol barna í íhlutunar-skólunum 10% meira en í samanburðarskólum.
Fjallað var um rannsóknina í Kastljósi Sjónvarpsins í gær og má sjá þáttinn hér
18.1.2010 19:38



