Tannlæknadeild býður upp á BS nám í tannsmíði
Frá árinu 1988 hefur tannsmíði verið kennd sem iðngrein við Tannsmiðaskóla Íslands, sem frá upphafi hefur haft aðstöðu í húsakynnum Tannlæknadeildar Háskóla Íslands við Vatnsmýrarveg 16. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að sameina skólann Tannlæknadeild og frá haustmisseri 2009 verður boðið upp á þriggja ára BS nám í tannsmíði. Meginmarkmið námsins er að mennta nemendur í tannsmíði og stuðla þannig að grunnþjónustu við sjúklinga í formi munngervasmíði. Boðið verður krefjandi bóklegt og verklegt nám, þar sem nemendur kynnast viðurkenndum aðferðum í munngervasmíð og raunverulegum verkefnum.
Nám í tannsmíði verður kennt sem 180 eininga aðalgrein til BS prófs. Í desember, að loknu haustmisseri fyrsta árs, er haldið samkeppnispróf og er þeim fimm stúdentum sem lokið hafa öllum prófum misserisins með hæsta meðaleinkunn heimilað að hefja nám á öðru misseri. Inntökuskilyrði í námið er stúdentspróf af bóknámsbraut framhaldsskóla.
Á fyrstu þremur misserum námsins eru kenndar undirstöðugreinar munngervasmíði. Á fjórða og fimmta misseri er lögð áhersla á verklegar æfingar á kennsluverkstæðum og á sjötta og síðasta misseri námsins er áhersla á vinnu við lokaverkefni undir handleiðslu kennara við námsbrautina. Að loknu BS prófi í tannsmíði geta nemendur sótt um starfsleyfi til Landlæknisembættisins. Einnig er mögulegt fyrir nemendur að sækja framhaldsnám við háskóla erlendis.
Til þess er ætlast af tannsmiðum að þeir, í samræmi við aðrar heilbrigðisstéttir, stuðli að alhliða heilbrigði sjúklinga með því að vinna að faglegri þjónustu í munngervasmíð. Megintilgangur menntunar tannsmiða er að tryggja að nemendur séu að loknu námi færir um að stunda munngervasmíðar með því að nota nútímaleg, viðeigandi, árangursrík og almennt viðurkennd úrræði við smíðina, með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi. Til þess að ná þessu markmiðum á kennsla í tannsmíði að veita nemendum trausta þjálfun sem byggir á sjónarmiðum mannúðar, vísinda og heilbrigðrar skynsemi.
22.5.2009 08:53



