Sumarnámskeið við HÍ um orku, umhverfi og nytjar



Orka, umhverfi og nytjar er heiti á nýju tveggja eininga námskeiði sem nemendum Háskóla Íslands stendur til boða að sækja dagana 25. til 29. maí. Efni námskeiðsins nýtist nemendum í verkfræði og öðrum áhugasömum um orku- og umhverfismál. Námskeiðið gefur almennt yfirlit um stöðu orkumála í heiminum og orkumál á Íslandi í því samhengi. Staða vatnsafls og jarðhita verður kynnt sérstaklega. Fjallað verður um vinnslu á rafmagni með vatnsafli og jarðhita og notkun raforku á almennum markaði og til stóriðju á Íslandi.

Farið verður nánar yfir samspil umhverfis og orkunytja, undirbúning og uppbyggingu vatnsaflsvirkjana og jarðgufuvirkjana og helstu atriði er varða vélar, rafbúnað og rekstur raforkukerfisins. Nemendur vinna verkefni samhliða kennslunni.

Sigurður Magnús Garðarsson forseti Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar ber faglega ábyrgð á náminu en sérfræðingar Landsvirkjunar og Landsvirkjunar Power kenna námskeiðið, Háskóla Íslands að kostnaðarlausu.