Styrkur til nemanda í vélaverkfræði við HÍ
Ákveðið hefur verið að veita námsstyrk til vélaverkfræðinema við Háskóla Íslands í maí nk. Um er að ræða staka úthlutun og heildarstyrkupphæð getur verið allt að kr. 1.000.000.
Megintilgangur og markmið styrksins er að styrkja nemendur sem hafa minnst lokið tveimur árum í grunnnámi í vélaverkfræði, til námsdvalar utan Íslands, gjarnan í Danmörku, til að auka þannig við þekkingu sína og reynslu. Nemendur geta sótt um styrk til skiptináms í grunn- eða framhaldsnámi við erlendan/danskan háskóla eða notið starfsþjálfunar í eitt misseri, t.d. í fyrirtæki Godtfreds, Vestergaard Company A/S.
Godtfred Vestergaard afhenti Háskóla Íslands peningagjöf að upphæð DKK 40.000 hinn 2. október sl. Peningagjöfin er í nafni gefandans og eiginkonu hans, Elínar Brynjólfsdóttur, sem lést árið 2001.
Umsóknarfrestur um styrkinn er til 22. mars 2010. Val styrkhafa er í höndum úthlutunarnefndar sem skipuð hefur verið af rektor Háskóla Íslands í samráði við forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Nefndina skipa fulltrúar Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar Háskólans: Ólafur Pétur Pálsson deildarforseti og formaður nefndarinnar, Fjóla Jónsdóttir dósent og Halldór Pálsson dósent.
Frekari upplýsingar um styrkinn er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is, og einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra styrktarsjóða og hollvina HÍ, helgab@hi.is, sími 525 5894 og Inga Rafni Ólafssyni, markaðs- og kynningarstjóra Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, ingirafn@hi.is, sími 525 5174
Godtfred Vestergaard er danskur verkfræðingur af íslenskum ættum og forstjóri fyrirtækisins Vestergaard Company A/S. Tengsl hans við Ísland eru náin og voru móðir hans og eiginkona íslenskar. Elín var dóttir Brynjólfs Bjarnasonar, fyrrvernadi menntamálaráðherra og heimspekings. Þau hjónin stofnuðu Heimspekisjóð Brynjólfs Bjarnasonar við Háskóla Íslands árið 1990 en sá sjóður styrkir nemendur í framhaldsnámi í heimspeki.
Nánari upplýsingar um umsóknina
1.3.2010 08:43




