Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við HÍ

Ákveðið hefur verið að veita styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur í byrjun nóvember nk. Um er að ræða styrk til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við Háskóla Íslands. Heildarupphæð styrks til úthlutunar er 750.000 krónur.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 5. október 2009 og er val styrkhafa í höndum stjórnarmanna. Stjórn sjóðsins skipa Erla Kolbrún Svavarsdóttir, formaður stjórnarinnar og stjórnarformaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, Helga Gottfreðsdóttir lektor, Aðalbjörg J. Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur og Ragnheiður Haraldsdóttir, fulltrúi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimsíðu Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði.

Þetta er í annað sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. Áður hefur verið úthlutað úr sjóðnum, árið 2008. Styrkhafar voru þá Jóhanna Bernharðsdóttir og Eydís Sveinbjarnardóttir, doktorsnemar í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur var stofnaður af Ingibjörgu R. Magnúsdóttur, auk Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Landspítalans. Ingibjörg er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við HÍ og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Helga Garðarsdóttir, verkefnastjóri RSH, helgagar@hi.is, sími 525-5280.


9.9.2009 13:42


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.