Styrkir til blindra og sjónskertra stúdenta við Háskóla Íslands

Þórsteinssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki.

Ákveðið hefur verið að veita styrk úr Þórsteinssjóði á árinu 2009. Tilgangur Þórsteinssjóðs er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir á fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.

Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2009.

Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám eða hyggja á nám við Háskóla Íslands. Styrkurinn er fyrir háskólaárið 2009-2010. Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er kr. 1.000.000
Í umsókninni þurfa eftirtalin atriði að koma fram:

Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
Helstu atriði úr náms- og/eða starfsferli umsækjanda.
Hvaða nám viðkomandi stundar eða hyggst stunda við Háskóla Íslands.
Upplýsingar um námsferil og námsárangur í framhaldsskóla eða háskóla eftir því sem við á.
Meðmæli frá kennurum og/eða atvinnurekendum.
Áætlun um námsframvindu.

Hámarkslengd umsóknar eru þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórnin áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta með öðrum hætti.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.
Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun veitir Helga Brá Árnadóttir, verkefnisstjóri styrktarsjóða og hollvina, helgab@hi.is, sími 525-5894.

Tilkoma Þórsteinssjóðs hefur breytt stórkostlega möguleikum blindra og sjónskertra til að helga sig háskólanámi. Þetta er í þriðja skipti sem úthlutað er úr sjóðnum en áður hafa fjórir nemendur fengið styrki úr Þórsteinssjóði.

Þórsteinssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands 6. desember 2006 af Blindravinafélagi Íslands, til  minningar um Þórstein Bjarnason, stofnanda Blindravinafélagsins. Tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins að efla líf blindra og sjónskertra á íslandi.


1.10.2009 13:52


deila á facebook
Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...

Tækifæri í samstarfi um...

Aukinn vegur doktorsnáms við Háskóla Íslands og vaxandi samstarf við erlenda háskóla um menntun doktorsnema er meginumfjöllunarefni Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í nýjum pistli sem hún ritar á heimasíðu sína.

Upptaka af málþingi

Gæðanefnd og Kennslumálanefnd Háskóla Íslands ásamt vísindanefnd háskólaráðs stóðu fyrir málþingi um akademískt frelsi í kennslu og rannsóknum föstudaginn 27. janúar. Málþingið fór fram í Öskju og þar ræddu fjórir prófessorar af ólíkum fræðasviðum Háskóla Íslands um akademískt frelsi út frá...