Spænska í HÍ í samstarfi við evrópska háskóla

Erasmus Mundus menntaáætluninni var hleypt af stokkunum á vegum Evrópusambandsins árið 2004. Markmið hennar er að styrkja og stuðla að frekari uppbyggingu framhaldsnáms á meistara- og doktorsstigi við evrópska háskóla. Fyrr á árinu var leitað til Háskóla Íslands um þátttöku í verkefninu MULTIELE: „Multilingalism: Master’s degree in Learning and Teaching of Spanish in Multilingual and International Contexts“ sem Deusto-háskólinn í Bilbao á Spáni veitir forystu. Brugðist var jákvætt við fyrirspurninni og skemmst er frá því að segja að verkefnið hlaut starfsstyrk frá sambandinu til næstu fjögurra ára. Háskóli Íslands er því einn sjö evrópskra háskóla sem koma að þessari nýju námsleið á meistarastigi. Aðrir háskólar sem tengjast henni eru Háskólinn í Barcelona, Pompeu-Fabra háskólinn í Barcelona, Stokkhólms-háskóli, Freie-Universität í Berlin og Groningen-háskóli í Hollandi. Í nánu samstarfi við evrópsku háskólana eru Maryland-háskóli í Bandaríkjunum, Campinas-háskóli í Brasilíu, Jawajarlal Nehru-háskólinn á Indlandi, Málvísinda-háskóli Moskvu í Rússlandi og Osaka-háskóli í Japan.

Það er mikil viðurkenning fyrir spænskukennslu við HÍ að vera valin til samstarfs og ekki hvað síst vegna þess að þetta er fyrsta verkefnið sem Háskóli Íslands tekur fullan þátt í innan Erasmus Mundus áætlunarinnar.

Til gamans má geta þess að Háskóli Íslands er einn 4000 háskóla sem skráðir eru starfandi innan Evrópu um þessar mundir. Á þeirra vettvangi starfar um ein og hálf milljón manna og rúmlega l7 milljónir nemenda sækja þangað menntun á ári hverju. Áhugasömum nemendum er bent á að kynna sér hinar fjölmörgu mismunandi námsleiðir sem í boði eru og um leið möguleika á styrkjum til frekara náms. Upplýsingar er að finna hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins og á vef Erasmus Mundus.

 

Erasmus Mundus menntaáætluninni (.pdf)


9.11.2009 09:24


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.